
Haukur Randversson skipstjóri á Geysi SH landar sínum boltaþorski og var ánægður með róðurinn. „Ég var aðeins að veiðum í fimm tíma svo ég er sáttur við daginn,“ sagði Haukur. Ljósmyndir: AF
Mokafli í öll veiðarfæri og sumir tvílanda
Mjög góður afli hefur verið í öll veiðarfæri í Snæfellsbæ að undanförnu og ekki óalgengt að bátar hafa tvílandað sama daginn. Línubáturinn Lilja SH landaði tvisvar fyrir helgi í Rifi, fyrst 14,5 tonnum og síðar um kvöldið tæpum 8 tonnum og lagði báturinn 12 af 15 rekkum sem þeir voru með um borð. Emil Freyr Emilsson skipstjóri sagði að þetta hefði verið algjört blóðbað og fiskur á hverjum krók og mest allt þorskur yfir 8 kílóum.