Fréttir

true

Skagamenn töpuðu fyrir norðan

Þór Akureyri og ÍA mættust í Höllinni á Akureyri í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og úr varð hörkuleikur. Heimamenn í Þór voru mun sterkari í byrjun leiks, þeir skoruðu ellefu stig í röð á þriggja mínútna kafla og breyttu stöðunni úr 3:4 í 14:4. Gestirnir voru alltaf að elta seinni hlutann í…Lesa meira

true

Tapaðir boltar og sóknarfráköst voru dýrkeypt í tapi Snæfells

Snæfell og KR mættust í Stykkishólmi á föstudagskvöldið í fyrstu deild karla í körfu. Fyrir leikinn var KR í þriðja sæti deildarinnar með 28 stig en Snæfell í neðsta sæti með 4 stig. Athygli vakti að ameríski leikmaður Snæfells, Jaeden King, var í borgaralegum klæðum og tók ekki þátt í leiknum. Leikmaðurinn er að glíma…Lesa meira

true

Staða fjarskiptamála á Vesturlandi

Mörg útivistarsvæði án viðunandi fjarskiptasambands Nýútkomin er skýrsla sem unnin var af Þorsteini Gunnlaugssyni ráðgjafi hjá Gagna, fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Þar var gerð samantekt á útbreiðslu fastaneta, farneta, útvarpsdreifingar og hvaða framkvæmdir væru væntanlegar. Upplýsingar lágu fyrir seinnipart árs 2023 og tekur til stöðu farneta; farsímadreifikerfa, fastaneta; ljósleiðara og kopartenginga, Tetra; neyðarsamskiptakerfi Neyðarlínunnar…Lesa meira

true

Ágætis gengi í Lengjubikarnum um helgina

Liðin af Vesturlandi héldu áfram leik í Lengjubikarnum í knattspyrnu um helgina og var niðurstaðan tveir sigrar, eitt jafntefli og eitt tap eftir leiki helgarinnar. Skagamenn með stórsigur Skagamenn tóku á móti Dalvík/Reyni í 3. umferð A deildar karla í Lengjubikarnum í riðli 4 í Akraneshöllinni á laugardaginn. Ingi Þór Sigurðsson kom ÍA yfir í…Lesa meira

true

Ný viðbragðsáætlun ef eldur kemur upp í bíl í göngunum

Eins og margir muna kom upp eldur í bíl sem ekið var upp Hvalfjarðargöngin á suðurleið 11. október á síðasta ári. Eins og gefur að skilja var viðbragð á hæsta forgangi enda er eldur í jarðgöngum eitt það hættulegasta sem getur komið upp. Í nýjasta tölublaði af Framkvæmdafréttum, sem Vegagerðin gefur út, er greint frá…Lesa meira

true

Skallagrímur með frábæran sigur á Fjölni

Fjölnir og Skallagrímur áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn í Dalhúsum í Grafarvogi. Fyrir leik var Fjölnir á toppi deildarinnar með 30 stig en Skallagrímur í 5. sæti með 18 stig. Í síðustu viðureignum liðanna höfðu Skallagrímsmenn haft betur og því spennandi að sjá hvort breyting yrði þar…Lesa meira

true

Skapandi framtíð mótuð í nýsköpunarsmiðju á Staðarfelli

Unga fólkið naut sín vel í vetrarleyfi þegar nýverið fór fram frumkvöðla- og nýsköpunarsmiðja að Staðarfelli á Fellsströnd í Dölum. Smiðjan var haldin í félagsheimilinu á Fellsströnd en farið var í fjörumó og lungun styrkt um miðjan dag með útiveru við kjöraðstæður; sól, logn og mildu hitastigi. Lúxusútgáfa af frumkvöðla- og nýsköpunarnámskeiði er auðvitað að…Lesa meira

true

Dalabyggð auglýsir eftir tillögu að verki við innkomu í Búðardal

Sveitarfélagið Dalabyggð kallar eftir tillögum að frumhönnun á aðkomutákni sem býður fólk velkomið í þéttbýliskjarnann Búðardal. Um er að ræða verk sem staðsett verður við innkomu í þorpið en eftir er að velja endanlega staðsetningu. Tilgangur með því að auglýsa eftir hönnun er að fá fram tillögu að verki sem best er fallin til framkvæmdar.…Lesa meira

true

Bókaklúbburinn Þráður í Borgarnesi

Á bókasafninu í Borgarnesi er bókaklúbburinn Þráður starfandi en félagar í honum lesa eina ákveðna bók í mánuði og ræða svo um hana á mánaðarlegum fundum sínum í Safnahúsinu. Oft eru ýmsar aðrar bækur og önnur málefni rædd í leiðinni. Bækurnar sem lesnar hafa verið spanna vítt svið skáldsagna, frá ýmsum tímum og ýmsum stöðum…Lesa meira

true

Rauða rósin fær byggingarrétt á Kveldúlfsgötu 30

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að úthluta lóðinni Kveldúlfsgötu 30 í Borgarnesi til fyrirtækisins Rauðu rósarinnar ehf. Þar verður heimild til ríflega þúsund fermetra byggingarmagns og a.m.k. tólf íbúðir gætu orðið í húsinu. Áður hafði byggðarráð kallað eftir frekari gögnum á grundvelli reglna um úthlutun lóða í sveitarfélaginu, en tvö fyrirtæki höfðu falast eftir lóðinni. Til…Lesa meira