Búðardalur. Ljósm. úr safni/ Steina Matt

Dalabyggð auglýsir eftir tillögu að verki við innkomu í Búðardal

Sveitarfélagið Dalabyggð kallar eftir tillögum að frumhönnun á aðkomutákni sem býður fólk velkomið í þéttbýliskjarnann Búðardal. Um er að ræða verk sem staðsett verður við innkomu í þorpið en eftir er að velja endanlega staðsetningu. Tilgangur með því að auglýsa eftir hönnun er að fá fram tillögu að verki sem best er fallin til framkvæmdar. Það er samstarfshópur Dalabyggðar, Vegagerðarinnar og SSV sem fer með umsjón verkefnisins.

Dalabyggð auglýsir eftir tillögu að verki við innkomu í Búðardal - Skessuhorn