Fólki leist ekki í blikuna þegar þennan þykka svarta reyk tók að leggja upp úr göngunum að sunnanverðu, nokkrum mínútum eftir að eldurinn gaus upp 11. október sl. Ljósm. Skessuhorn/ Guðmundur Rúnar Hjörleifsson.

Ný viðbragðsáætlun ef eldur kemur upp í bíl í göngunum

Eins og margir muna kom upp eldur í bíl sem ekið var upp Hvalfjarðargöngin á suðurleið 11. október á síðasta ári. Eins og gefur að skilja var viðbragð á hæsta forgangi enda er eldur í jarðgöngum eitt það hættulegasta sem getur komið upp. Í nýjasta tölublaði af Framkvæmdafréttum, sem Vegagerðin gefur út, er greint frá því að Valgarður Guðmundsson sérfræðingur hjá Vegagerðinni, hafi farið yfir atburðarrásina á morgunfundi Vegagerðarinnar um þjónustu og rekstur jarðganga sem haldinn var í janúar á þessu ári. Í greininni kemur m.a. fram að Valgarður hafi kynnt nýja viðbragðsáætlun fyrir göngin sem unnið hefur verið að frá síðasta sumri og er á lokametrunum. „Ný viðbragðsáætlun er gagnvirk og því auðveldari í notkun en gömlu doðrantarnir sem þurfti að fletta í. Þarna má smella á ákveðin atvik og svo hægt að haka í gátlista. Við erum mjög ánægð með þessa áætlun sem unnin hefur verið í samstarfi við slökkviliðin á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi,“ sagði Valgarður.

Ný viðbragðsáætlun ef eldur kemur upp í bíl í göngunum - Skessuhorn