
Melabúðin – verslun sælkerans og Geirabakarí í Borgarnesi eru komin í samstarf. Frá og með deginum í dag eru tvíbökur, kringlur, ástarpungar, gulrótarúgbrauð og borgfirskt sveitabrauð frá Geirabakarí til sölu í Melabúðinni. Á myndinni eru Þórdís Arnardóttir eigandi Geirabakarís í Borgarnesi og Pétur Alan Guðmundsson eigandi Melabúðarinnar. Ljósmynd af FB síðu Geirabakarís.Lesa meira








