Fréttir

true

Ráðherra dregur í land með eyjamálið

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir fjármálaráðherra skrifar grein á visir.is í dag þar sem hún upplýsir að hún hafi farið þess á leit við óbyggðanefnd að hún endurskoði afstöðu sína í þjóðlendumálinu sem verið hefur til umfjöllunar undanfarna viku. Þórdís skrifar að að ríkið ætli ekki að sölsa undir sig eyjar landsins, heldur sé markmiðið að…Lesa meira

true

ÍR-ingar ofjarlar Skagamanna

ÍA og ÍR áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var viðureignin á Jaðarsbökkum á Akranesi. Fyrir leik voru heimamenn um miðja deild með 16 stig á meðan ÍR var á toppnum ásamt Fjölni með 28 stig  Leikurinn fór frekar rólega af stað, þegar rúmar fimm mínútur voru liðnar af leiknum…Lesa meira

true

Loka í dag gámasvæðinu á Grímsstöðum í Reykholtsdal

Borgarbyggð tilkynnti íbúum á Facebooksíðunni Uppsveitir Borgarfjarðar á föstudaginn að í dag, mánudaginn 19. febrúar, yrði hætt rekstri gámasvæðisins á Grímsstöðum í Reykholtsdal og gámarnir fjarlægðir. Þar hefur verið hægt að losna við timbur, járn, pappa, spilliefni og almennt sorp undanfarna áratugi. Í tilkynningunni vísar Borgarbyggð til samþykktar umhverfis- og landbúnaðarnefndar frá því í janúar,…Lesa meira

true

Sindri Karl Sigurjónsson sló sautján ára gamalt Íslandsmet

Um síðustu helgi fór fram MÍ innanhússmót í frjálsum í Laugardalshöll. Sindri Karl Sigurjónsson frá UMSB bætti þar aldursflokkametið í 3000m hlaupi í flokki pilta 15 ára. Hann hljóp á tímanum 9:40,81 mín en fyrra aldursflokkamet átti Fannar Blær Austar Egilsson (USÚ), á tímanum 9:45,55 mín. Það met var frá árinu 2007.Lesa meira

true

Íslendingar orðnir fjögur hundruð þúsund talsins

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá eru einstaklingar með skráð lögheimili á Íslandi orðnir 400 þúsund talsins. „Þetta er þó lifandi tala og líkur á því að hún verði breytileg í kringum 400 þúsund í einhverja daga því á hverjum degi eru margar skráningar í þjóðskrá sem hafa áhrif á heildarfjölda lögheimilisskráninga,“ segir í tilkynningu frá Þjóðskrá.…Lesa meira

true

Skallagrímur vann öruggan sigur á Snæfelli

Skallagrímur tók á móti Snæfelli í Fjósinu í Borgarnesi í 1. deild karla í körfu í sannkölluðum Vesturlandsslag á föstudagskvöldið. Fyrir leik var staða liðanna í deildinni nokkuð ólík, Skallagrímur var með 16 stig í 5.-7. sæti á meðan Snæfell var í því neðsta með fjögur stig. Það sýndi sig þó ekki alveg í byrjun…Lesa meira

true

Lengjubikarinn fór á fullt um helgina

Það var nóg að gera hjá Vesturlandsliðunum um helgina í Lengjubikarnum í knattspyrnu. Skagamenn léku fyrir norðan eftir að hafa unnið stórsigur í fyrsta leik og lið Víkings Ólafsvíkur og Kára og lið ÍA kvennamegin hófu keppni í sínum deildum. KA og ÍA mættust í Boganum á Akureyri á föstudagskvöldið í A deild karla og…Lesa meira

true

Séra Laufey Brá sett í embætti sóknarprests

Í gær, sunnudaginn 18. febrúar, var sr. Laufey Brá Jónsdóttir sett í embætti sóknarprests í Setbergsprestakalli á Snæfellsnesi. Sr. Gunnar Eiríkur Hauksson prófastur setti sr. Laufeyju Brá í embætti og saman þjónuðu þau ásamt sr. Aðalsteini Þorvaldssyni og sr. Ægi Erni Sveinssyni. Kirkjukór Grundarfjarðarkirkju söng undir stjórn Lindu Maríu Nielsen og organistanum Þorkeli Mána Þorkelssyni.…Lesa meira

true

Myndamorgunn í Safnahúsi Borgarfjarðar

Margt var um manninn í Safnahúsi Borgarfjarðar síðastliðinn föstudagsmorgun. Þar var kominn saman hópur af fólki til að skoða ljósmyndir Einars Ingimundarsonar, en gestir myndamorgna eru beðnir um að nafngreina fólk, staði og/eða viðburði sem finna má á ljósmyndum Einars. Næsti myndamorgunn verður föstudaginn 1. mars næstkomandi.Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar í Víkurhverfi í Stykkishólmi

Sveitarfélagið Stykkishólmur auglýsti nýverið 12 nýjar íbúðarhúsalóðir í Víkurhverfi. Gatnagerð á svæðinu stendur nú yfir og á henni að vera lokið um miðjan júní 2024. Lóðirnar eru í mikilli nánd við náttúru en unnið er nú að því að merkja gönguleið meðfram framkvæmdasvæðinu þannig að gangandi vegfarendur komist leiðar sinnar á Grensás og að sjósundsaðstöðunni…Lesa meira