Ráðherra dregur í land með eyjamálið

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir fjármálaráðherra skrifar grein á visir.is í dag þar sem hún upplýsir að hún hafi farið þess á leit við óbyggðanefnd að hún endurskoði afstöðu sína í þjóðlendumálinu sem verið hefur til umfjöllunar undanfarna viku. Þórdís skrifar að að ríkið ætli ekki að sölsa undir sig eyjar landsins, heldur sé markmiðið að eyða óvissu um eignarréttindi lands. Kveðst ráðherra hafa farið þess á leit við óbyggðanefnd að hún hefji að nýju málsmeðferð um eyjar og sker með þeim hætti sem ráðuneytið óskaði eftir í mars 2023.

Ráðherra dregur í land með eyjamálið - Skessuhorn