Fréttir

true

Svæðið Mýrar-Löngufjörur ekki á framkvæmdaáætlun að sinni

Sérstaða svæðisins þó ótvíræð Í síðustu viku greindi Skessuhorn frá fundi sem Umhverfisstofnun (UST) hélt í félagsheimilinu Lyngbrekku á Mýrum mánudaginn 12. febrúar. Var hann haldinn vegna tillögu um svæðið Mýrar-Löngufjörur til framkvæmdaáætlunar náttúruminjaskrár og til hans boðað til að upplýsa hlutaðeigandi landeigendur og fá endurgjöf áður en ákveðið væri hvort svæðið héldi áfram í…Lesa meira

true

Bjarki með besta árangur íslensku kylfinganna

Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr Borgarnesi var ásamt fjórum öðrum íslensku kylfingum á GolfStar Winter Series – Links mótinu, sem fram fór á Empordá vellinum á Spáni, dagana 16.-18. febrúar. Mótið er á Nordic Golf League atvinnumótaröðinni – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki. Alls tóku 148 keppendur þátt í mótinu…Lesa meira

true

Bæjarstjóri telur framgöngu ríkisins óásættanlega

„Í raun er verið að sóa fjármunum hins opinbera sem væru betur nýttir annars staðar“ Í kröfu fjármála- og efnahagsráðherra í eyjar og sker úti fyrir strandlengjunni, fyrir hönd íslenska ríkisins, sem byggir á greinargerð óbyggðanefndar er meðal annars gerð krafa um að Súgandisey, Landey og aðrar eyjur Sveitarfélagsins Stykkishólms falli í skaut ríkissjóðs. Blaðamaður…Lesa meira

true

Innkalla skinku vegna listeriu

Matvælastofnun varar neytendur við tveimur framleiðslulotum af Stjörnugrís skinku 80 og brauðskinku vegna þess að það greinist Listeria monocytogenis. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vörurnar. Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotur: Vöruheiti: Stjörnugrís skinka 80. Framleiðandi: Stjörnugrís. Best fyrir 18.03.2024. Lotunúmer: 60022-4032. Dreifing: Allar helstu matvöruverslanir.Lesa meira

true

Lára Lind ráðin í nýtt starf hjá Grundarfjarðarbæ

Í desember síðastliðnum auglýsti Grundarfjarðarbær nýtt starf forstöðumanns bókasafns og menningarmála. Fram kemur á vef bæjarins að bæjarstjórn hafi nú ráðið Láru Lind Jakobsdóttur í starfið. Forstöðumaður hefur umsjón með starfsemi almenningsbókasafns og menningarhúsa; þ.e. samkomuhúss og Sögumiðstöðvar, en ætlunin er að byggja upp fjölbreyttan stuðning og þjónustu við íbúa, ekki síst nýja íbúa, með…Lesa meira

true

Keppni í pönnukökubakstri aftur komin á dagskrá á Landsmóti 50+

Fulltrúar UMFÍ, ungmennafélagsins Þróttar Vogum og sveitarfélagsins Voga skrifuðu um miðja síðustu viku undir samning um Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið verður í Vogum í sumar. Boðið verður upp á klassískar greinar; pönnukökubakstur, brennó og margt fleira. Búist er við fjölmennasta mótinu frá upphafi, samkvæmt frétt á vef UMFÍ. „Við erum búin að ákveða keppnisgreinar…Lesa meira

true

Ferðafélag Borgarfjarðar á göngu um Akranes

Laugardaginn 17. febrúar síðastliðinn var boðið upp á tæplega ellefu km göngu undir leiðsögn Rögnvaldar Gíslasonar um Akranes. Gengið var í ljúfu veðri, eins og vaninn er á Akranesi, en örlítill vindur heilsaði upp á þátttakendur við Akranesvita.Lesa meira

true

Fimm gull og eitt silfur í hús hjá BA

Unglingamót Aftureldingar í badminton var haldið í Íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ um síðustu helgi. Keppt var í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik í flokki A og B í U13, U15, U17 og U19. Badmintonfélag Akraness sendi nokkra keppendur á mótið og stóðu þeir sig mjög vel, afraksturinn í lok móts var alls fimm gull og…Lesa meira

true

Þjóðskrá er stofnun ársins

Þjóðskrá varð í fyrsta sæti í flokki meðalstórra stofnana í Stofnun ársins 2023. Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu tilkynnti um valið á Stofnun ársins 2023 fimmtudaginn 15. febrúar síðastliðinn. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana og nær til tæplega 40.000 einstaklinga á vinnumarkaði. Í könnuninni eru þátttakendur spurðir út…Lesa meira

true

ÍA býður upp á sálfræðiþjónustu

Sálfræðistofa Reykjavíkur (SR) og Íþróttabandalag Akraness ÍA skrifuðu undir samning í síðustu viku þess efnis að SR muni veita íþróttafólki og þjálfurum aðildarfélaga ÍA sálfræðiþjónustu sem verður að fullu greidd af ÍA. Í tilkynningu frá ÍA kemur fram að fjögur föst sálfræðiviðtöl muni standa íþróttafólki og þjálfurum ÍA til boða en það er margsannað að…Lesa meira