
Loka í dag gámasvæðinu á Grímsstöðum í Reykholtsdal
Borgarbyggð tilkynnti íbúum á Facebooksíðunni Uppsveitir Borgarfjarðar á föstudaginn að í dag, mánudaginn 19. febrúar, yrði hætt rekstri gámasvæðisins á Grímsstöðum í Reykholtsdal og gámarnir fjarlægðir. Þar hefur verið hægt að losna við timbur, járn, pappa, spilliefni og almennt sorp undanfarna áratugi. Í tilkynningunni vísar Borgarbyggð til samþykktar umhverfis- og landbúnaðarnefndar frá því í janúar, en þar sagði: „Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til að gámastöðinni á Grímsstöðum verði lokað eins fljótt og kostur er. Ekki er lengur heimilt að reka eftirlitslausar gámastöðvar þar sem flokkun er ekki fylgt eftir. Því hefur það verið stefna sveitarfélagsins að leggja af þær stöðvar og auka við þjónustu með öðrum hætti. Um er að ræða síðustu gámastöðina sem rekin er með þessu hætti í sveitarfélaginu.“