
Hér má sjá búsetu eftir landshlutum. Mynd: Þjóðskrá
Íslendingar orðnir fjögur hundruð þúsund talsins
Samkvæmt skráningu í þjóðskrá eru einstaklingar með skráð lögheimili á Íslandi orðnir 400 þúsund talsins. „Þetta er þó lifandi tala og líkur á því að hún verði breytileg í kringum 400 þúsund í einhverja daga því á hverjum degi eru margar skráningar í þjóðskrá sem hafa áhrif á heildarfjölda lögheimilisskráninga,“ segir í tilkynningu frá Þjóðskrá. Þar kemur m.a. fram að nú eru 18.070 búsettir á Vesturlandi.