Fréttir

true

Myndlistarsýning opnuð í Safnahúsi á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 8. febrúar klukkan 16-18, verður í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi opnuð sýningin „Á móti straumnum.“ Á sýningunni í Hallsteinssal verða verk eftir 12 íslenskar listakonur; þar á meðal Nínu Tryggvadóttur, Gerði Helgadóttur og Ásgerði Búadóttur. Listakonurnar eiga það sammerkt að hafa þurft að synda á móti straumnum í listaheimi þar sem karlar…Lesa meira

true

Formaður Samfylkingarinnar heimsótti í dag fyrirtæki á Grundartanga og Akranesi

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar var í dag á ferð um Akranes og Hvalfjarðarsveit. Heimsótti hún fyrirtæki á Grundartanga í morgun og eftir hádegið á Akranesi. Ræddi hún við starfsfólk og stjórnendur um hvað helst brennur á fólki. Komið var við hjá Elkem og Líflandi á Grundartanga en síðan á Akranesi var farið á Breið, Baader…Lesa meira

true

Mistök Advania urðu til þess að tilnefna þarf biskupsefni að nýju

Komið hefur í ljós að vegna tæknilegra mistaka hjá Advanía, þjónustuaðila vegna biskupskosninga, verður ekki unnt að telja tilnefningar til biskupskjörs með öruggum hætti. Á vef Þjóðkirkjunnar kemur fram að kjörstjórn telji í ljósi mistakanna rétt að endurtaka tilnefningarnar eins fljótt og unnt er og verður stefnt að því að þær hefjist að nýju fyrir…Lesa meira

true

Mjög gott hljóðið í aðilum ferðaþjónustu á Vesturlandi – Rætt um stöðuna og horfurnar framundan

Ferðaþjónustan hefur verið á hraðri leið upp síðustu ár á Íslandi og fjöldi erlendra ferðamanna er alltaf að aukast ár frá ári. Því er nú spáð að gestafjöldi til landsins gæti orðið 2,2 – 2,4 milljónir á þessu ári. Skessuhorn heyrði hljóðið í nokkrum ferðaþjónustuaðilum á Vesturlandi og forvitnaðist hvernig staðan væri nú í byrjun…Lesa meira

true

Mikið fjör á Skíðasvæði Snæfellsness síðustu daga – Myndasyrpa

Veðrið síðustu daga hefur verið með miklum ágætum til skíðaiðkunar í Grundarfirði og tekist hefur að halda skíðasvæðinu opnu íbúum og nærsveitungum til mikillar gleði. Fólk hefur verið duglegt að mæta og skíða á þessu lægsta skíðasvæði landsins. Samkvæmt veðurspánni ætti að vera opið næstu daga og til dæmis er Grunnskóli Grundarfjarðar búinn að auglýsa…Lesa meira

true

Tilbúinn í stjórnmálin ef réttur flokkur finnst

Ítarlegt viðtal við Hannes S Jónsson framkvæmdastjóra Körfuknattleikssambands Íslands Frá unglingsárum hefur allt líf Hannesar Sigurbjörns Jónssonar snúist um körfubolta. Hann telur sig hafa margt fram að færa í stjórnmálum og oftar en einu sinni hefur verið komið að máli við hann þar um. Þó Hannes elski að búa á Akranesi urðu eftirmálar þess að…Lesa meira

true

Þór Akureyri sótti tvö stig í Stykkishólm

Snæfell og Þór Akureyri mættust í fyrstu umferð af sex í B deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Stykkishólmi. Eftir að Subway deildinni lauk í lok janúar var henni skipt í efri og neðri hluta og í neðri hlutanum eru lið Vals, Fjölnis, Þórs og Snæfells. Þegar þessum leikjum lýkur verður…Lesa meira

true

Stýrivextir áfram óbreyttir

Tilkynnt var í morgun að stýrivextir Seðlabankans verður áfram haldið óbreyttum í hæstu hæðum, eða í 9,5%. Fram kom í kynningu stofnunarinnar að verulega hafi dregið úr einkaneyslu og hagvöxtur farið hratt minnkandi, enda hafi raunvextir hækkað töluvert frá því í júní á síðasta ári. Seðlabankinn fylgist grannt með framgangi kjaraviðræðna og ákvað í morgun…Lesa meira

true

Grillhúsið í Borgarnesi til nýrra eigenda

Grillhúsið í Borgarnesi hefur verið selt til nýrra eigenda sem munu reka það áfram undir sama nafni. Það er Örvar Bessason sem hefur keypt staðinn ásamt fjárfestum. Örvar hefur starfað við matreiðslu frá blautu barnsbeini og hefur verið rekstrarstjóri á Grillhúsinu í Borgarnesi frá því síðastliðið haust. Hann er búsettur í Borgarnesi og segist hafa…Lesa meira

true

Bjóða út byggingu nýs skólahúss á Kleppjárnsreykjum

Nýtt deiliskipulag hefur verið samþykkt fyrir Kleppjárnsreyki í Borgarfirði. Farið var í breytingar til m.a. að rúma nýja skólabyggingu sem ákveðið hefur verið að byggja. Í Skessuhorni sem kom út í dag auglýsir verkfræðistofan Efla og Borgarbyggð útboð fyrir nýja skólabyggingu á staðnum. Í verkinu felst einnig niðurrif hluta núverandi skólabygginga og sambærilegt byggingarmagn, eða…Lesa meira