
Alexandra Björg Andradóttir gerir sig klára að taka lyftuna. Texti og myndir: TFK
Mikið fjör á Skíðasvæði Snæfellsness síðustu daga – Myndasyrpa
Veðrið síðustu daga hefur verið með miklum ágætum til skíðaiðkunar í Grundarfirði og tekist hefur að halda skíðasvæðinu opnu íbúum og nærsveitungum til mikillar gleði. Fólk hefur verið duglegt að mæta og skíða á þessu lægsta skíðasvæði landsins. Samkvæmt veðurspánni ætti að vera opið næstu daga og til dæmis er Grunnskóli Grundarfjarðar búinn að auglýsa skíðadag á morgun, fimmtudag, sem kemur þá í stað hefðbundinnar kennslu. Vonandi verða veðurguðirnir áfram hliðhollir skíðaþyrstum Snæfellingum.