Fréttir

true

Forsætisráðherra kallar eftir samráði um sjálfbæra þróun

Nýverið var fyrsta skrefið að mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun stigið með birtingu draga að grænbók á Samráðsgátt stjórnvalda. Af þessu tilefni hefur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra boðið til opins samráðs um málið með fundum um allt land. Síðdegis í gær tók blaðamaður Skessuhorns þátt í einum þeirra, í Hjálmakletti í Borgarnesi. Framsögumenn voru eftirtalin…Lesa meira

true

Lítilsháttar halli á samstæðureikningi Dalabyggðar

Ársreikningur Dalabyggðar fyrir síðasta ár var til síðari umræðu í sveitarstjórn 13. apríl síðastliðinn. Þar kemur m.a. fram að rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2022 námu 1.153,7 milljónum króna fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 925,1 milljónum. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var neikvæð um 13 milljónir króna en rekstrarniðurstaða…Lesa meira

true

Stærðfræðikeppnin verður á föstudaginn í FVA

Yfir hundrað nemendur af Vesturlandi eru skráðir í stærðfræðikeppni nemenda 8.-10. bekkja grunnskólanna á Vesturlandi, sem Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi hefur staðið fyrir um árabil. Keppnin nú verður haldin í 23. skiptið, en eftir hlé vegna Covid faraldursins. Mikil stemning verður því í húsnæði fjölbrautaskólans á föstudaginn og verður keppendum boðið í veitingar að lokinni…Lesa meira

true

Vel heppnað héraðsþing HSH á aldarafmælinu

Héraðsþing Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu var haldið í félagsheimilinu Lindartungu í Kolbeinsstaðahreppi laugardaginn 22. apríl. Þar var endurkjörin stjórn og varastjórn HSH, veittar voru viðurkenningar og ýmis málefni báru á góma. Íþróttamaður HSH árið 2022 er Rebekka Rán Karlsdóttir og er hún jafnframt útnefnd körfuboltamaður HSH. Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir er skotíþróttamaður HSH. Harpa Dögg Bergmann…Lesa meira

true

Sundmeistarar krýndir að móti loknu

Akranesmeistaramótið í sundi fór fram á Jaðarsbökkum föstudaginn 21. apríl í sól og blíðu, eins og oft áður á sundmótum á Skaganum. Mörg frábær sund voru hjá keppendum. 26 sundmenn, 11 ára og eldri, tóku þátt og var mótið mjög vel heppnað. Eftir mót var verðlaunaafhending og pizzuveisla í boði Galito og vill Sundfélag Akraness…Lesa meira

true

ÍA stóð sig vel á Íslandsmóti unglinga í badminton

Keppendur frá Badmintonfélagi Akraness stóðu sig vel á Íslandsmóti unglinga í badminton sem fram fór helgina 15. og 16. apríl í TBR húsinu í Reykjavík. Alls tóku 160 keppendur þátt og fjöldi leikja var 288. Mikið var um spennandi leiki og fjöldi áhorfenda mætti til að horfa á frábært badminton. Davíð Logi Atlason frá ÍA…Lesa meira

true

Dalabyggð segir upp samningi um rekstur Silfurtúns

Þriðjudaginn 18. apríl síðastliðinn ákváðu stjórn Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Silfurtúns í Búðardal og sveitarstjórn Dalabyggðar að segja upp samningi Silfurtúns við Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisráðuneytið. Uppsagnarfrestur er sex mánuðir. Í þessu felst að Dalabyggð mun ekki sjá um rekstur heimilisins eftir að samningnum lýkur. Segir í tilkynningu á vef Dalabyggðar að stjórn Silfurtúns og sveitarstjórn…Lesa meira

true

Hjólað fyrir Píeta

Síðastliðinn laugardag var mikið um að vera í spinningsal Líkamsræktarinnar í Grundarfirði en þá var hjólað til styrktar Píeta samtökunum. Það var einkaþjálfarinn og spinningkennarinn Rut Rúnarsdóttir sem var í forsvari fyrir átakið en samtökin eiga sérstakan stað í hjarta hennar eftir að hún missti bróðir sinn, Kristinn Soffanías Rúnarsson, skyndilega í júní 2021. Samtökin…Lesa meira

true

Guðmar Þór og Uppsteypa sigurvegarar í Vesturlandsdeildinni

Lokakvöld Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum var á föstudaginn en þá var keppt í tveimur greinum; Tölti T1 og skeiði í gegnum höllina.  Það var villikötturinn Páll Bragi Hólmarsson á Vísi frá Kagaðarhóli sem stóð uppi sem sigurvegari í töltinu með einkunnina 8,22. Í skeiði í gegnum höllina var það svo Guðmar Þór Pétursson sem varð fljótastur…Lesa meira

true

Birta gátlista fyrir væntanlega strandveiðisjómenn

Samgöngustofa, í samráði við Siglingaráð, hefur tekið saman gátlista til að auðvelda væntanlegum strandveiðisjómönnum að hafa allt til taks og öryggisbúnað í lagi, en strandveiðar hefjast þriðjudaginn 2. maí næstkomandi. Sjómenn hafa undanfarna daga verið í óða önn að gera bátana klára til veiða og flestir búnir að sjósetja. „Með góðu viðhaldi báts og búnaðar…Lesa meira