Dalabyggð segir upp samningi um rekstur Silfurtúns

Þriðjudaginn 18. apríl síðastliðinn ákváðu stjórn Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Silfurtúns í Búðardal og sveitarstjórn Dalabyggðar að segja upp samningi Silfurtúns við Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisráðuneytið. Uppsagnarfrestur er sex mánuðir. Í þessu felst að Dalabyggð mun ekki sjá um rekstur heimilisins eftir að samningnum lýkur. Segir í tilkynningu á vef Dalabyggðar að stjórn Silfurtúns og sveitarstjórn hafi undanfarnar vikur átt í samskiptum við Sjúkratryggingar Íslands vegna daggjaldagrunns Silfurtúns.

Daggjald er ákveðið gjald sem íslenska ríkið greiðir til hjúkrunarheimila á dag fyrir hvert hjúkrunarrými eða dvalarheimilisrými sem eru í notkun innan heimilanna. Svonefndur daggjaldagrunnur er svo uppfærður árlega með hliðsjón af verðlags- og launabreytingum auk þess sem daggjald hvers einstaka hjúkrunarheimilis ákvarðast einnig af svonefndu RAI-matskerfi sem metur til að mynda þjónustuþörf íbúa og á daggjaldið að vera hærra eftir því sem þjónustuþörfin er meiri. Segir í tilkynningunni að Dalabyggð hafi óskað eftir því við Sjúkratryggingar Íslands að fá daggjaldagrunn Silfurtúns leiðréttan og hafi fært fyrir því ýmis rök, en Sjúkratryggingar Íslands hafi nú í tvígang hafnað beiðninni.

Vegna þess hefur stjórn Silfurtúns og sveitarstjórn Dalabyggðar tekið ákvörðun um að segja upp samningnum. „Eins og kunnugt er hefur verið mikill halli á rekstri Silfurtúns mörg undanfarin ár og er það mat okkar að við þá stöðu sé ekki lengur unað því rekstur hjúkrunar- og dvalarrýma á landinu er eitt af hlutverkum ríkisvaldsins, ekki sveitarfélaga,“ segir í tilkynningu en Dalabyggð hefur greitt á fjórða tug milljóna með rekstri Silfurtúns árlega.

Vonast sveitarfélagið til þess að viðræður um nýjan rekstraraðila heimilisins fari af stað sem fyrst, sem gæti orðið ríkisvaldið, en fordæmi eru fyrir því að heilbrigðisstofnanir taki yfir rekstur öldrunarheimila í sínum landshluta. Sex mánaða uppsagnarfrestur er á samningi Dalabyggðar við SÍ svo að frá og með 18. október 2023 hættir Dalabyggð rekstri Silfurtúns.

Ekki kemur til uppsagna starfsmanna Silfurtúns að sinni, segir í tilkynningu Dalabyggðar.

Dalabyggð segir upp samningi um rekstur Silfurtúns - Skessuhorn