Lítilsháttar halli á samstæðureikningi Dalabyggðar

Ársreikningur Dalabyggðar fyrir síðasta ár var til síðari umræðu í sveitarstjórn 13. apríl síðastliðinn. Þar kemur m.a. fram að rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2022 námu 1.153,7 milljónum króna fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 925,1 milljónum. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var neikvæð um 13 milljónir króna en rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 35,2 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2022 nam 901,9 millj. króna en eigið fé A hluta var 844,7 millj. kr.

Lítilsháttar halli á samstæðureikningi Dalabyggðar - Skessuhorn