
Heiða Lára Guðmundsdóttir Skotíþróttamaður HSH 2022, Jón Pétur Pétursson fulltrúi Skíðafélags Snæfellsness sem er Vinnuþjarkur HSH, Garðar Svansson sem tók við viðurkenningu í forföllum Sigurþórs Jónssonar Kylfings HSH, Rebekka Rán Karlsdóttir Íþróttamaður HSH og Körfuboltamaður HSH, Erna Sigurðardóttir móðir Hörpu Daggar Bergmann Hestíþróttamanns HSH og Margrét Eva Einarsdóttir formaður Víkings í forföllum Konráðs Ragnarssonar Knattspyrnumanns HSH. Ljósm. sk.
Vel heppnað héraðsþing HSH á aldarafmælinu
Héraðsþing Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu var haldið í félagsheimilinu Lindartungu í Kolbeinsstaðahreppi laugardaginn 22. apríl. Þar var endurkjörin stjórn og varastjórn HSH, veittar voru viðurkenningar og ýmis málefni báru á góma.