Fundinum lauk með hópavinnu fundargesta og tók Katrín Jakobsdóttir fullan þátt í henni, hér situr hún við eitt borðanna. Ljósmyndir: Guðrún Jónsdóttir.

Forsætisráðherra kallar eftir samráði um sjálfbæra þróun

Nýverið var fyrsta skrefið að mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun stigið með birtingu draga að grænbók á Samráðsgátt stjórnvalda. Af þessu tilefni hefur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra boðið til opins samráðs um málið með fundum um allt land. Síðdegis í gær tók blaðamaður Skessuhorns þátt í einum þeirra, í Hjálmakletti í Borgarnesi. Framsögumenn voru eftirtalin auk forsætisráðherra: Stefán Gíslason eigandi Environice, Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun hjá HÍ, og Eggert Benedikt Guðmundsson leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu. Fundarstjóri var Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst. Af hálfu stjórnvalda er fundunum og umræðum sem skapast á þeim ætlað að nýtast við frekari vinnu við grænbókina og stefnumótun um sjálfbært Ísland.

Forsætisráðherra kallar eftir samráði um sjálfbæra þróun - Skessuhorn