Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns og sjómaður til áratuga sjósetti nýskveraðan bát sinn á laugardaginn í Ólafsvíkurhöfn, en hann stefnir ásamt fleirum á strandveiðar í byrjun maí. Svava SH-267 er hinn fallegasti bátur. Ljósm. Illugi Jens Jónasson.

Birta gátlista fyrir væntanlega strandveiðisjómenn

Samgöngustofa, í samráði við Siglingaráð, hefur tekið saman gátlista til að auðvelda væntanlegum strandveiðisjómönnum að hafa allt til taks og öryggisbúnað í lagi, en strandveiðar hefjast þriðjudaginn 2. maí næstkomandi. Sjómenn hafa undanfarna daga verið í óða önn að gera bátana klára til veiða og flestir búnir að sjósetja. „Með góðu viðhaldi báts og búnaðar og reglulegri yfirferð á þeim atriðum sem eru á listanum hér fyrir neðan, er á auðveldan hátt hægt að auka öryggi sjófarenda og auka líkur á ánægjulegri sjóferð. Svo er bara að haka í boxin þegar skoðun er lokið,“ segir í ráðleggingum Samgöngustofu. En skoðum gátlistann:

Búnaður bátsins:

Athugið hvort gróður hafi myndast í tönkum en það getur orsakað stíflu í olíukerfum og síum (Gerist stundum eftir langt stopp).

Hreinsið eldsneytisolíukerfi, olíugeyma, lagnir og síur sérstaklega vel eftir langa legu báts.

Athugið hvort olíumælar sýni rétt eldsneytismagn. Verið viss um að hægt sé að mæla/pæla (handvirkt) magn eldsneytis ef mælir er bilaður.

Athugið ástand rafgeyma. Ef vafi er á ástandi þeirra skuluð þið biðja skoðunarmenn um að álagsprófa geymana.

Athugið hvort lensidælur og lagnir frá þeim séu í lagi. Hvort síur séu hreinar og að það sé gott aðgengi að þeim. (Æskilegt er að hafa færanlega handdælu til taks.)

Hafið til vara olíu- og vatnssíur ásamt verkfærum til að skipta um þær.

Hafið til vara reimar og verkfæri til að skipta um þær.

Hafið varabirgðir af smurolíu.

Gætið þess að landfestar og dráttartóg séu í góðu ásigkomulagi.

Gætið þess að ankeri séu til taks, aðgengileg og tilbúin til notkunar.

Verið viss um að stýri og neyðarstýri séu í lagi.

Verið viss um að siglingaljós séu í lagi.

Fjarskipti:

Tryggið að öll fjarskiptatæki séu í lagi. Verið viss um að loftnet fyrir talstöð AIS og síma séu í lagi.

Athugið að AIS tækið sendi réttar upplýsingar um auðkenni báts og nafn. Gæta þarf þess að ef nafni og auðkenni báts hefur verið breytt að það sé uppfært í AIS.

Neyðar- og björgunarbúnaður:

Athugið að losunarbúnaður björgunarbáta sé í góðu lagi.

Hafið björgunarbúninga og –vesti aðgengileg.

Hafið handslökkvitæki aðgengileg og betra er að hafa þau fleiri en færri um borð.

Passið að neyðarútgangar séu hindrunarlausir og greiðfærir.

Athugið að neyðarstigi sé í lagi.

Gætið þess að sjúkrakassi sé yfirfarinn og í lagi.

Athugið að neyðarblys og flugeldar séu um borð. Gætið þess að þau séu ekki útrunnin og geymið þau á viðeigandi hátt.

Athugið að neyðarsendar séu í lagi.

Hafið vasaljós tiltæk, gerið athugun á virkni þeirra og hafið aukarafhlöður.

Hafið aukafatnað – í vatnsheldum umbúðum.

Hafið sjónauka um borð í bátnum.

Fyrir brottför:

Áður en lagt er af stað skal farið vandlega yfir framangreind atriði:

Athugið að lögskráning sé samkvæmt reglum, trygging sé gild fyrir áhöfn og að réttindi og öryggisþekking skipverja sé í lagi.

Athugið veðurspá.

Verið vel úthvíld fyrir brottför.

Verið þess fullviss að þekking á stjórnbúnaði báts og stöðugleika sé til staðar.

Gangið úr skugga um að næg eldsneytisolía sé um borð í bátnum.

Tryggið að allur sjóbúnaður sé í lagi.

Kveikið á AIS tæki fyrir brottför.

Tilkynnið brottför til strandstöðvar á rás VHF 09.

Munið að stilla talstöð á VHF 16 til að uppfylla skyldu um hlustvörslu. Hægt er að nota Dual Watch (DW) til þess.

Klæðist „fleytibúnaði” við vinnu á þilfari

Hafið uppfært sjókort (í plasti/plastað) af svæðinu sem veiðar eru stundaðar á.

Birta gátlista fyrir væntanlega strandveiðisjómenn - Skessuhorn