Fréttir

true

Tölfræði um hnapphelduna

Af 4.416 einstaklingum sem gengu í hjúskap hér á landi árið 2022 gengu 39,2% í hjúskap hjá Þjóðkirkjunni, 34,9% hjá sýslumönnum, 14,6% hjá öðrum trúfélögum og 11,3% annarsstaðar. Meðalaldur einstaklinga sem gengu í hjúskap var 38,2 ár á síðasta ári. Í samantekt Þjóðskrár er einnig rýnt í tölur út frá búsetu. Þegar horft er á…Lesa meira

true

Ættartengsl íslenskra háhyrninga birt í fyrsta sinn

Birt hefur verið í fyrsta sinn skýrsla sem inniheldur skrá yfir fjölskyldutengsl háhyrninga í kvenlegg við strendur Íslands. Þar er fjallað um háhyrninga sem sáust við Snæfellsnes í 737 tilvikum á árunum 2014-2023. Í frétt frá Náttúrustofu Vesturlands kemur fram að félagskerfi háhyrninga byggir á fjölskylduhópum sem leiddir eru af eldri kvendýrum. Afkvæmi fylgja yfirleitt…Lesa meira

true

„Það er fjöldi tækifæra fyrir bæinn okkar“

Rætt við Veru Líndal sem er komin aftur á heimaslóðirnar Vera Líndal Guðnadóttir var á dögunum ráðin sem verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað og tekur við því starfi um næstu mánaðamót. Blaðamaður heyrði í Veru og fékk að forvitnast um nýja starfið hennar. Talið barst einnig að heimabænum, menningunni, náminu, listinni og ýmsu öðru.…Lesa meira

true

Skortur á varnarlínuviðhaldi mikið áhyggjuefni

Í fundargerð Umhverfis- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar frá 14. apríl sl. var lögð fram áskorun á Matvælastofnun og Matvælaráðuneyti að auka verulega fjármagn í viðhald á sauðfjárveikivarnargirðingum milli Húnavatnssýslna og Borgarfjarðar- og Mýrasýslu í ljósi riðusmita sem nýverið komu upp í Miðfjarðarhólfi. Bent er á að hagsmunir heillrar atvinnugreinar séu í húfi og getur núverandi staða…Lesa meira

true

Landbúnaðarháskólinn kemur vel út úr gæðaúttekt

Gæðaráð íslenskra háskóla hefur birt niðurstöður úttektar á getu Landbúnaðarháskóla Íslands til þess að tryggja gæði þeirra námsgráða sem skólinn veitir og þess námsumhverfis sem hann býður nemendum sínum. Úttektin er liður í reglubundnu ytra mati Gæðaráðs með gæðum íslenskra háskóla. Í tilkynningu frá Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu kemur fram að úttektarteymið ber traust til…Lesa meira

true

Ítreka ályktun um viðhald þjóðvega á Snæfellsnesi

Á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar 13. apríl síðastliðinn ályktaði hún um viðhald þjóðvega á Snæfellsnesi. Víða á Snæfellsnesi eru vegirnir mjög slæmir og vansinnt. Bókun bæjarstjórnar var eftirfarandi, þar sem lagðar voru fram upplýsingar um fjárveitingar til viðhalds þjóðvega á Vestursvæði (Vesturland og Vestfirðir) á árinu 2023: „Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar lýsir enn yfir þungum áhyggjum af lélegu…Lesa meira

true

Þorsteinn Már tekur skóna af hillunni

Víkingur Ólafsvík hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir sumarið því Þorsteinn Már Ragnarsson hefur samþykkt að taka skóna af hillunni, fá félagaskipti yfir í Víking Ólafvík og vera liðinu innan handar í sumar. Fram kemur á FB síðu félagsins að sökum vinnu mun Þorsteinn ekki ná að helga sig knattspyrnunni að fullu en engu að síður…Lesa meira

true

Brúin komin yfir Berjadalsá

Rótarýbrúin var sett yfir Berjadalsá í Akrafjalli síðasta laugardagsmorgun. Félagar í Rótarýklúbbi Akraness fengu góða aðstoð tveggja Akurnesinga og gönguhóps af höfuðborgarsvæðinu. Verkið gekk fljótt og vel sökum mikils mannafla og vonandi mun brúin nýtast vel fyrir göngufólk í allt sumar. Brúin verður tekin af ánni í haust, venjulega í kringum fyrsta vetrardag. Ef það…Lesa meira

true

Hamar hafði betur á móti Skallagrími í hörkueinvígi

Það var troðfull stúka og mikil stemning í Frystikistunni í Hveragerði í gærkvöldi þegar lið Hamars og Skallagríms áttust við í úrslitaleik um sæti í Subway deildinni í körfuknattleik karla á næsta tímabili. Næstum 500 stuðningsmenn voru mættir til að styðja sín lið og létu vel í sér heyra allan leikinn og miklu meira en…Lesa meira

true

Stóri plokkdagurinn verður á Akranesi á sunnudaginn

Rótarýklúbbur Akraness mun í samstarfi við almenning og Akraneskaupstað standa að plokki á Akranesi næstkomandi sunnudag á milli klukkan 10 og 14. Einstaklingar, fyrirtæki og samtök, eru hvattir til að taka þátt og gera bæinn snyrtilegri. Í sameiginlegri tilkynningu segir: „Hvað þarf? Glæra plastpoka. Fólk útvegar sér sjálft plastpoka. Einnig má fá plastpoka hjá okkur…Lesa meira