Börn að plokka á Akranesi vorið 2018. Ljósm. úr safni.

Stóri plokkdagurinn verður á Akranesi á sunnudaginn

Rótarýklúbbur Akraness mun í samstarfi við almenning og Akraneskaupstað standa að plokki á Akranesi næstkomandi sunnudag á milli klukkan 10 og 14. Einstaklingar, fyrirtæki og samtök, eru hvattir til að taka þátt og gera bæinn snyrtilegri. Í sameiginlegri tilkynningu segir:

„Hvað þarf? Glæra plastpoka. Fólk útvegar sér sjálft plastpoka. Einnig má fá plastpoka hjá okkur í Rótarýklúbbnum. Við verðum við gamla Skagaver frá kl. 10. Hafa má samband við Jens til að fá plastpoka (jensbb@internet.is eða í síma 897-5148).

Hvað geri ég við fulla plastpoka? Akraneskaupstaður og Terra ætla að koma fyrir aukagámum á föstudag við grenndarstöðvarnar þrjár: Við Skagaver, við Byggðasafn og við Bíóhöllina. Aukagámarnir eru einungis hugsaðir fyrir blandaðan úrgang í tengslum við plokkdaginn.

Varðandi stærri flokkaðan úrgang er bent á að fara með hann í endurvinnslustöðina við Höfðasel og garðaúrgang í skeifuna þar fyrir ofan. Rótarýfélagar geta náð í fulla plastpoka á sunnudag.  Hafa má samband við Jens.

Hvernig erum við útbúin? Klæðum okkur eftir aðstæðum. Hanskar og öryggisvesti eru ákjósanleg.

Hvernig veljum við stað? Mikið er af smárusli um allan bæ sem auðvelt er að minnka ef allir leggjast á eitt. Við íbúar erum bærinn og við getum gert stórátak í að halda honum hreinum með því að leggja verkefninu lið, hver á sinn hátt. Þannig er líka hægt að sameina útiveru og umhverfisvitund þar sem ruslatínsla er kjörið tækifæri til að hreyfa sig og fegra umhverfið í leiðinni.

Rótarýklúbburinn mun leggja áherslu á skógræktarsvæðið meðfram þjóðveginum. Íbúar á Akranesi eru hvattir til að taka þátt í að halda bænum okkar hreinum og snyrtilegum,“ segir í tilkynningu frá Akraneskaupstað og Rótarýklúbbi Akraness.

Stóri plokkdagurinn verður á Akranesi á sunnudaginn - Skessuhorn