
Gönguhópur aðstoðaði við burðinn.
Brúin komin yfir Berjadalsá
Rótarýbrúin var sett yfir Berjadalsá í Akrafjalli síðasta laugardagsmorgun. Félagar í Rótarýklúbbi Akraness fengu góða aðstoð tveggja Akurnesinga og gönguhóps af höfuðborgarsvæðinu. Verkið gekk fljótt og vel sökum mikils mannafla og vonandi mun brúin nýtast vel fyrir göngufólk í allt sumar. Brúin verður tekin af ánni í haust, venjulega í kringum fyrsta vetrardag. Ef það væri ekki gert myndu vetrarveðrin og flóð eyðileggja hana.