Fréttir

true

Lögreglan á Vesturlandi rafbílavæðist

Í gær, þriðjudaginn 4. apríl, kom Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku- og loftlagsráðherra í heimsókn á Vesturland. Heimsóknin byrjaði á lögreglustöðinni í Borgarnesi þar sem nýr rafbíll var tekinn í notkun hjá embætti Lögreglunnar á Vesturlandi. Bíllinn er að gerðinni Tesla Y og hefur nú þegar sést til hans á ferð um Borgarnes og nágrenni.…Lesa meira

true

Verðlagsnefnd hækkar lágmarksverð mjólkur til bænda

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 1. apríl 2023: – Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 4,33%, úr 119,77 kr./ltr í 124,96 kr./ltr. Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 12. apríl 2023: – Heildsöluverð mjólkur…Lesa meira

true

Sundmenn ÍA gerðu góða hluti á Íslandsmótinu í 50 metra laug

179 sundmenn frá 18 félögum tóku þátt á Íslands- og unglingameistaramóti í 50 metra laug í sundi sem fram fór í Laugardalslaug um síðustu helgi. Alls tóku níu sundmenn frá ÍA þátt í mótinu en það voru þau Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, Íris Arna Ingvarsdóttir, Sunna Dís Skarphéðinsdóttir, Viktoria Emilia Orlita. Enrique Snær…Lesa meira

true

Vegurinn um Uxahryggi – hver er staðan?

Uxahryggjavegur (52) liggur frá gatnamótunum við Götuás á Borgarfjarðarbraut og mætir Þingvallavegi (36) rétt við Upplýsingamiðstöðina á Þingvöllum. Þessi vegarkafli er um 60 km langur og tengir saman Suðurland og Vesturland. Vegurinn er umtalaður og hefur verið í tugi ára, oft hvað mest í kringum alþingiskosningar. Hann hefur verið á samgönguáætlun síðustu ár og er…Lesa meira

true

Nýr bíll til björgunarsveitarinnar Ósk í Dalabyggð

Í liðinni viku fékk Björgunarsveitin Ósk í Dalabyggð afhentan 40″ breyttan RAM 3500 Laramie Mega Cab bíl frá Ísband ehf. sem flytur inn ýmsar gerðir bandarískra bíla. Bíllinn kemur í stað eldri bíls sem björgunarsveitin Ósk hefur átt og rekið í rúm 35 ár og er af gerðinni Ford Econoline. Þann bíl flutti björgunarsveitin inn…Lesa meira

true

,,Bestu hlutirnir gerast í rigningunni“

Í tilefni þess að páskarnir eru á næsta leiti settist blaðamaður niður með séra Önnu Eiríksdóttur og fékk að heyra hennar sögu og ræða um tengingu samfélagsins við páskana. Séra Anna Eiríksdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Þar bjó hún allar götur þar til hún útskrifaðist sem prestur og var ráðin í starf sóknarprests…Lesa meira

true

Móttökupakki fyrir nýja íbúa Borgarbyggðar

Síðasta mánudag hófst nýtt verkefni í Borgarbyggð sem hefur verið í bígerð allt frá því á síðasta ári og hefur nú litið dagsins ljós. Nú fá allir nýir íbúar Borgarbyggðar afhentan móttökupakka en markmið móttökupakkans er fyrst og fremst að bjóða nýja íbúa velkomna í sveitarfélagið. „Það er alltaf ánægjulegt þegar það fjölgar í samfélaginu…Lesa meira

true

Melló sýnir söngleikinn Hlið við hlið í Bíóhöllinni

Leiklistaklúbburinn Melló í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi frumsýnir söngleikinn Hlið við hlið laugardaginn 15. apríl næstkomandi í Bíóhöllinni. Söngleikurinn er byggður á lögum eins vinsælasta söngvara landsins, Friðriks Dórs. Hlið við hlið fjallar um borgarstrákinn Dag sem fær sumarvinnu á sveitahóteli þar sem allt er eins og það hefur verið í áraraðir. En koma hans…Lesa meira

true

Heiðar Örn nýr slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð

Heiðar Örn Jónsson hefur tekið við sem slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, en þær breytingar áttu sér stað 1. apríl síðastliðinn. Heiðar Örn var áður aðstoðarslökkviliðsstjóri og eldvarnareftirlitsmaður hjá Borgarbyggð. Bjarni Kristinn Þorsteinsson fyrrum slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar verður þá um leið varaslökkviliðsstjóri og verkefnisstjóri. „Ég er afskaplega ánægður með þessa ákvörðun. Sjálfur verð ég 64 ára í júní og…Lesa meira

true

Viktor vann einmenning Bridgefélags Borgarfjarðar

Einmenningskeppni Bridgefélags Borgarfjarðar var haldin í Logalandi í gærkvöldi. Alls voru 20 spilarar mættir til leiks og menn spenntir fyrir kvöldinu. Sigurvegari kvöldsins var Skagamaðurinn Viktor Björnsson sem var með 67,2% skor, í öðru sæti var Jóhann Oddsson á Steinum með 63,5% og skammt á eftir í þriðja sætinu var Baldur Björnsson í Múlakoti með…Lesa meira