Einar Margeir, Kristján og Guðbjarni voru þrír efstu í 50 metra skriðsundi í unglingaflokki. Ljósm. Jón R. Hilmarsson

Sundmenn ÍA gerðu góða hluti á Íslandsmótinu í 50 metra laug

179 sundmenn frá 18 félögum tóku þátt á Íslands- og unglingameistaramóti í 50 metra laug í sundi sem fram fór í Laugardalslaug um síðustu helgi. Alls tóku níu sundmenn frá ÍA þátt í mótinu en það voru þau Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, Íris Arna Ingvarsdóttir, Sunna Dís Skarphéðinsdóttir, Viktoria Emilia Orlita. Enrique Snær Llorens Sigurðsson, Einar Margeir Ágústsson, Kristján Magnússon og Guðbjarni Sigþórsson.

Sundmenn ÍA gerðu góða hluti á Íslandsmótinu í 50 metra laug - Skessuhorn