
Lundarreykjadalur. Brautartunga fyrir miðri mynd. Ljósm. úr safni/ Mats Wibe Lund.
Vegurinn um Uxahryggi – hver er staðan?
Uxahryggjavegur (52) liggur frá gatnamótunum við Götuás á Borgarfjarðarbraut og mætir Þingvallavegi (36) rétt við Upplýsingamiðstöðina á Þingvöllum. Þessi vegarkafli er um 60 km langur og tengir saman Suðurland og Vesturland. Vegurinn er umtalaður og hefur verið í tugi ára, oft hvað mest í kringum alþingiskosningar. Hann hefur verið á samgönguáætlun síðustu ár og er enn. Endurbygging vegarins hefur gengið hægt og á enn eftir að leggja bundið slitlag á 23 kílómetra. Nýr vegur um Uxahryggi er hagsmunamál fyrir íbúa á Vesturlandi og á Suðurlandi, hann býr til hringtengingar, styttir leiðir og getur létt álaginu af hringveginum í kringum höfuðborgarsvæðið.