Fréttir

true

Lægsta tilboð 59,8% af áætluðum verktakakostnaði

Í mars voru tilboð opnuð hjá Vegagerðinni fyrir vetrarþjónustu á hinum ýmsu vegarköflum og svæðum fyrir árin 2023-2026. Áætlaður verktakakostnaður fyrir vetrarþjónustu í Dalabyggð á tímabilinu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, eru 112 milljónir króna. Eitt tilboð barst í verkið, frá Kol ehf. í Búðardal. Það hljóðaði upp á 91,3 milljónir, eða sem nemur…Lesa meira

true

„Maður er alltaf að reyna að hjálpa til“

Þorsteinn Bjarki Pétursson er uppalinn í Geirshlíð í Flókadal og segist í grunninn vera sveitakall og vélamaður. Hann býr nú á Hvanneyri með eiginkonu sinni, Margréti Helgu Guðmundsdóttur, og dóttur þeirra, Rósu Guðrúnu, en þau fjölskyldan keyptu sér hús þar í lok síðasta árs. Þorsteinn Bjarki, sem allajafna er kallaður Bjarki, segir það versta við…Lesa meira

true

Fín tilþrif og búningar í Grímutölti

Grímutölt hestamannafélagsins Borgfirðings var haldið síðastliðið laugardagskvöld. Óhætt er að segja og mikið hafi verið um flotta hesta og magnaða búninga. Félagið vill koma þökkum til Borgarverks sem styrkti mótið, Nettó sem gaf keppendum í polla- og barnaflokki páskaegg og Lífland sem gaf verðlaun fyrir besta búning í yngri og eldri flokkum. Með glæsilegasti búning…Lesa meira

true

Borgarbyggð gerir samning við Símenntun á Vesturlandi

Borgarbyggð hefur gert samstarfssamning við Símenntun á Vesturlandi um þjónustu á innleiðingu fræðsluáætlunar, gerð nýliðafræðslu og rafrænnar fræðslu á kennslukerfi fyrir Borgarbyggð. Um er að ræða stórt og mikilvægt skref hjá sveitarfélaginu í fræðslumálum. Þetta kemur fram á heimasíðu Borgarbyggðar en verkefnastjóri símenntunar mun skipuleggja fræðslu sem verður á dagskrá samkvæmt fræðsluáætlun á árunum 2023…Lesa meira

true

Riða komin upp í Vestur-Húnavatnssýslu

Matvælastofnun hefur gefið út tilkynningu þess efnis að riða hefur greinst á bænum Bergsstöðum í Vestur-Húnavatnssýslu. Unnið er að undibúningi aðgerða vegna smitsins. Kindur á Bergsstöðum fóru að sýna einkenni riðu í síðustu viku en bændur höfðu þá samband við Matvælastofnun. Smitið var staðfest eftir að starfsfólk Matvælastofnunnar tók sýni sem sent var til greiningar…Lesa meira

true

Magnea Þórey formaður undirbúningsstarfshóps Jaðarsbakkasvæðis

„Í viljayfirlýsingu Akraneskaupstaðar, Ísoldar fasteignafélags, ÍA og KFÍA, um uppbyggingu á Jaðarsbökkum er lögð áhersla á vandaða greiningu og stefnumörkun í ferðamálum á Jaðarsbakkasvæðinu. Þessi stefnumótunarvinna fyrir svæðið verður síðan nýtt áfram af hálfu Akraneskaupstaðar inn í vinnu við að móta heildstæða stefnu í ferðamálum fyrir sveitarfélagið sem ekki er til í dag. Markmiðið með…Lesa meira

true

Var ungur byrjaður að hanna hús fyrir huldufólk

Sigursteinn Sigurðsson starfar í dag sem arkitekt og er menningar- og velferðarfulltrúi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Hann er fæddur á Akranesi en ólst upp í Borgarnesi. Uppeldisárunum eyddi hann þó að mestu á ættaróðalinu að Álftártungu á Mýrum. ,,Ég bjó aldrei á Mýrunum en segist alltaf vera Mýramaður,“ segir Sigursteinn í Skinkuhorni vikunnar. ,,Matthildur frænka…Lesa meira

true

Snæfell úr leik eftir tap gegn Þór Akureyri í mögnuðum leik

Það var ljóst eftir tap Snæfells á móti Þór Akureyri á föstudagskvöldið að Snæfellskonur máttu ekki misstíga sig í leik Snæfells og Þórs sem fram fór í Stykkishólmi í gærkvöldi. Með sigri hefði Snæfell jafnað metin í 2-2 í einvíginu um sæti í Subway deild kvenna í körfuknattleik á næsta tímabili og úrslitaleikur því í…Lesa meira

true

Deiliskipulagstillaga vegna Skipavíkur verður tekin fyrir á aukafundi

Á fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Stykkishólms 30. mars sl. var lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið við Skipavík, ásamt greinargerð en sömuleiðis voru lagðar fram afgreiðslur 8. fundar skipulagsnefndar og 3. fundar hafnarstjórnar til staðfestingar, sem staðfestar voru á 9. fundi bæjarráðs, 21. mars. Óeining er um deiliskipulagstillöguna í bæjarstjórn sem staðfesti með fjórum atkvæðum…Lesa meira

true

Næst umfangsmestu rýmingaraðgerðir sögunnar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, heimsóttu Neskaupstað í gær ásamt fulltrúum Ofanflóðasjóðs og almannavarna Ríkislögreglustjóra. Ráðherrarnir kynntu sér ummerki snjóflóðanna sem féllu dagana á undan en ljóst má vera að tjón er umtalsvert. Í heild hafa um 850 manns þurft að yfirgefa heimili sín á Austurlandi og um 150…Lesa meira