Fréttir

true

Sautján ára Vestlendingur tilnefndur til Eddunnar

Viktor Benóný Benediktsson er tilnefndur til Eddunnar fyrir aðalhlutverk í kvikmyndinni Berdreymi sem leikstýrt er af Guðmundi Arnari Guðmundssyni. Myndin hefur hlotið ellefu Eddutilnefningar og var framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna en Eddan mun fara fram næstkomandi laugardag, 18. mars. Viktor er aðeins sautján ára gamall og er því með þeim yngstu sem hlotið hafa tilnefningu…Lesa meira

true

Öglukonur gefa til Brákarhlíðar og heilsugæslunnar

Nýverið færði Lionsklúbburinn Agla í Borgarnesi Brákarhlíð og heilsugæslustöð HVE í Borgarnesi peningagjafir. Nú hefur búnaður verið keyptur fyrir andvirðið og var hann formlega afhentur í gær. Heilsugæslustöðin keypti fósturhljóðtæki til notkunar fyrir ljósmóður. Tækið kostar um 90 þúsund krónur. Fram kom hjá Oddnýju Evu Böðvarsdóttur hjúkrunarfræðingi á HVE að tækið nýttist vel því eldra…Lesa meira

true

Sendiherra Bretlands heimsótti Borgarnes

Dr. Bryony Mathews, sendiherra Bretlands leit við í nokkrum fyrirtækjum og stofnunum í Borgarnesi mánudaginn 6. mars en sendiherrann var á ferð með starfsfólki sendiráðsins. Megin tilgangur ferðarinnar var að heimsækja Grunnskólann í Borgarnesi og kynna bókina ,,Tæknitröll og íseldfjöll“ fyrir 5. bekk en sendiherrann skrifaði bókina og gaf sendiráðið hana út fyrir áramót. Í…Lesa meira

true

Eiga sundlaugamenning og laufabrauðsgerð heima á skrá UNESCO?

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, lagði fyrir ríkisstjórn minnisblað um tillögur að tilnefningu laufabrauðsgerðar og sundlaugamenningar á skrá UNESCO yfir menningarerfðir mannkyns. „Sundlaugamenning hefur verið samgróin íslenskri þjóðarsál um margar aldir og hefur sjaldan verið jafn blómleg og nú. Ófá þjóðþrifamál eru rædd í laugum landsins. Það er mikil upphefð fyrir hvaða óáþreifanlegu menningu…Lesa meira

true

Kúr allra kúra – Leikklúbbur Laxdæla setur upp leikverk

Það er eitthvað í loftinu í Dölunum þessa dagana, eins og vorið komi úr dvala, en Leikklúbbur Laxdæla rankaði við sér nú upp úr áramótum og hyggst sýna leikrit í fullri lengd þetta vorið. Ólöf Halla Bjarnadóttir er leikstjóri sýningarinnar, en sett verður upp verkið Vodkakúrinn, eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur (Kikku), sem m.a. skrifaði hið…Lesa meira

true

„Mjög spennt að vera komin með aðstöðu í heimabyggð“

Efla er þekkingarfyrirtæki með 50 ára sögu sem veitir fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði, tækni og tengdra greina. Markaðssvið fyrirtækisins eru fjögur; byggingar, iðnaður, orka og samfélag og stoðsvið Eflu eru þrjú; mannauður, rekstur og þróun. Á Vesturlandi er Efla með starfsstöðvar á Hvanneyri, í Grundarfirði og um síðustu mánaðamót bættist við starfsstöð…Lesa meira

true

Ragnar endurkjörinn formaður VR

Ragnar Þór Ingólfsson var í dag endurkjörinn formaður VR til tveggja ára og ný stjórn kjörin. Ragnar Þór hlaut 57 prósent atkvæða gegn 39,4 prósentum Elvu Hrannar Hjartardóttur. Kosningaþátttaka var rétt rúmlega 30 prósent og hefur aldrei verið meiri í sögu félagsins. Þetta er í þriðja sinn sem Ragnar ber sigur úr býtum í formannskjöri…Lesa meira

true

„Ég var ekki eins ein og mér hafði fundist áður“

Listakonan Michelle Bird fluttist í Borgarnes árið 2014 og hefur komið sér þar vel fyrir í snotru einbýlishúsi með útsýni yfir Borgarfjörðinn og Hafnarfjallið. Michelle leggur fyrir sig myndlist og hefur lífgað upp á vestlenskt samfélag með verkum sýnum, sýningum, viðburðum og gjörningum. Hún er með mörg járn í eldinum og framundan eru ýmsir viðburðir…Lesa meira

true

Viðamikil skýrsla um kornrækt kynnt

Undir hádegi í dag var kynningarfundur á Hilton Reykjavík Nordica um nýja skýrslu um eflingu kornræktar í landinu. Matvælaráðuneytið stóð fyrir fundinum. Ráðherra setti fundinn en Helgi Eyleifur Þorvaldsson, aðjúnkt og brautastjóri búfræðibrautar við LbhÍ kynnti skýrsluna og sat fyrir svörum ásamt þeim Agli Gautasyni lektor við deild ræktunar og fæðu hjá LbhÍ og Hrannari…Lesa meira

true

Geirabakarí í Borgarnesi – Eigendaskipti eftir 35 ára rekstur

Geirabakarí í Borgarnesi er eitt þekktasta bakarí landsins enda úrvals staður og kaffihús sem margir ferðalangar kjósa sem áningarstað auk fastra viðskiptavina úr nærumhverfinu. Næstkomandi föstudag verða tímamót þegar eigendaskipti verða á fyrirtækinu eftir 35 ára rekstur. Sigurgeir Erlendsson og Annabella Albertsdóttir kveðja og Sigurþór Kristjánsson og eiginkona hans Þórdís Arnardóttir taka við fyrirtækinu. Formlega…Lesa meira