Starfsmenn Eflu á Akranesi. Frá vinstri: Ingi Sigurður, Aron, Sigurbjörn og Tómas Alexander. Ljósm. vaks

„Mjög spennt að vera komin með aðstöðu í heimabyggð“

Efla er þekkingarfyrirtæki með 50 ára sögu sem veitir fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði, tækni og tengdra greina. Markaðssvið fyrirtækisins eru fjögur; byggingar, iðnaður, orka og samfélag og stoðsvið Eflu eru þrjú; mannauður, rekstur og þróun. Á Vesturlandi er Efla með starfsstöðvar á Hvanneyri, í Grundarfirði og um síðustu mánaðamót bættist við starfsstöð á Akranesi sem er til húsa á þriðju hæð í Breið þróunarfélagi við Bárugötu. Starfsstöðin á Akranesi sinnir verkfræði- og ráðgjafarþjónustu, með sérstaka áherslu á þjónustu í framkvæmdum og byggingum ásamt því að sinna skipulagsmálum, landmælingum og kortagerð.

„Mjög spennt að vera komin með aðstöðu í heimabyggð“ - Skessuhorn