
Sendiherra Bretlands heimsótti Borgarnes
Dr. Bryony Mathews, sendiherra Bretlands leit við í nokkrum fyrirtækjum og stofnunum í Borgarnesi mánudaginn 6. mars en sendiherrann var á ferð með starfsfólki sendiráðsins. Megin tilgangur ferðarinnar var að heimsækja Grunnskólann í Borgarnesi og kynna bókina ,,Tæknitröll og íseldfjöll“ fyrir 5. bekk en sendiherrann skrifaði bókina og gaf sendiráðið hana út fyrir áramót. Í bókinni má fræðast um þrjátíu spennandi framtíðarstörf eins og þrívíddarmatarprentara, skammtatölvuforritara, jarðfjarkönnuði og nanóþjarkaverkfræðinga. Einnig kemur bókin inn á ólíka styrkleika fólks og mikilvægi þess að hver og einn rækti eigin hæfileika og uppfylli sína drauma. Samkvæmt heimildum Skessuhorns sýndu börnin bókinni mikinn áhuga og deildu framtíðardraumum sínum með starfsfólki sendiráðsins, ásamt því að spjalla um erfiðleika og hvernig hægt er að finna í sameiningu nýjar lausnir við vandamálum.