
Sautján ára Vestlendingur tilnefndur til Eddunnar
Viktor Benóný Benediktsson er tilnefndur til Eddunnar fyrir aðalhlutverk í kvikmyndinni Berdreymi sem leikstýrt er af Guðmundi Arnari Guðmundssyni. Myndin hefur hlotið ellefu Eddutilnefningar og var framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna en Eddan mun fara fram næstkomandi laugardag, 18. mars. Viktor er aðeins sautján ára gamall og er því með þeim yngstu sem hlotið hafa tilnefningu í flokknum. Birgir Dagur Bjarkason leikur annað aðalhlutverk í myndinni og hlaut einnig tilnefningu til Eddunnar í sama flokki. Ásamt þeim Viktori og Birgi eru það stórleikararnir Ingvar E. Sigurðsson, Gísli Örn Garðarsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson sem tilnefndir eru í flokknum.
Viktor Benóný ólst upp á Akranesi en er ættaður úr Lundarreykjadal í Borgarfirði og úr Reykhólasveit. Hann bjó hjá móður sinni á Reykhólum þegar hann fékk hlutverkið í Berdreymi og þurfti því að flytja til höfuðborgarinnar til að hafa tök á að þiggja hlutverkið. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Viktors.
,,Ég var bara 14 ára þegar ég fékk hlutverkið svo þetta er búið að vera langt ferli. Ég hafði áður leikið í kvikmyndinni Víti í Vestmannaeyjum og var að sækja um í öllum prufum sem ég vissi af. Ég sótti svo um Berdreymi og byrjaði í 500 stráka hóp sem minnkaði svo og minnkaði, að lokum fékk ég svo hlutverkið og þurfti að flytja til Reykjavíkur. Það var stór ákvörðun en ég byrjaði þá í sjötta grunnskólanum á minni skólagöngu,“ segir Viktor í samtali við Skessuhorn.
Tilnefningin þýðingarmikil
En hvernig er að leika í stórmynd með frægum leikurum? ,,Þetta var svolítið súrealískt. Mér fannst t.d. mjög merkilegt að vera að leika í kvikmynd með Anítu Briem sem á mjög farsælan feril. Þegar ég frétti að Ólafur Darri væri að leika á móti okkur í myndinni fékk ég smá sjokk. Ég man svo vel eftir því að hafa horft á hann taka við Eddunni árið 2013 fyrir Djúpið og horft upp til hans þá. Þess vegna er það mjög þýðingarmikið fyrir mig að leika á móti honum og svo fá þessa tilnefningu,“ segir Viktor.

Átta mánaða æfingaferli
Hversu langan tíma tekur að taka upp heila kvikmynd? ,,Tökurnar sjálfar tóku tvo mánuði en við vorum á æfingum í átta mánuði þar á undan. Það er ekki sjálfsagt að fá að tengjast hlutverkinu sínu svona vel og að svona mikil vinna sé lögð í æfingar fyrir tökur. Guðmundur leikstjóri lagði þó mikla áherslu á þetta sem skilar sér núna í flottum árangri, t.d. með tilnefningum myndarinnar til Eddunnar,“ segir Viktor.
Brast í grát
Viktor segir tilnefninguna hafa komið sér á óvart. ,,Pabbi hringdi í mig einn morguninn og byrjaði að óska mér til hamingju. Ég vaknaði sem sagt við símtalið og var þess vegna svolítið ruglaður og skildi ekki um hvað hann var að tala. Ég vissi ekki einu sinni að tilnefningarnar yrðu opinberaðar þennan dag svo þetta kom mér mikið á óvart. Pabbi sagði mér sem sagt frá þessu og mér var svo brugðið ég fór bara að hágráta. Þetta er mjög stórt og hvetjandi.“
Hvert stefnirðu svo í framtíðinni? ,,Ég er ennþá að sækja um verkefni en í kjölfar útgáfu myndarinnar fékk ég umboðsmann, svo það hjálpar til. Annars langar mig í Kvikmyndaskólann að læra leikstjórn svo ég geti framleitt myndir sjálfur,“ segir Viktor að lokum.
