Fréttir

true

Mikil uppbygging í Melahverfi

Mikið er verið að byggja í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit þessa dagana og er þetta hverfi í hraðri uppbyggingu. Við Lyngmel er parhús ágætlega komið á veg, grunnur er kominn að raðhúsi aðeins ofar í sömu götu og þá er fjögurra íbúða raðhúsalengja við Háamel í smíðum. Þar fyrir innan er verið að ljúka við tvö…Lesa meira

true

„Gaman að vera hluti af fjölbreyttum hópi skapandi einstaklinga“

Unnur Jónsdóttir er grafískur hönnuður með starfsaðstöðu í Nýsköpunarsetrinu á Breið á Akranesi. Hún var ein af frumkvöðlunum sem fluttu starfsemi sína þangað í nóvember 2021. Þá var hún að að vinna verkefni með fyrirtækinu Arttré en þau fluttu snemma starfsemi sína í húsið. „Áður var ég að vinna heima frá 2015 og munurinn er…Lesa meira

true

Keyrði löturhægt og fékk bifreið aftan á sig

Rétt fyrir miðnætti á þriðjudag í liðinni viku var tilkynnt um umferðaróhapp við Hvalfjarðargöng. Tildrögin voru þau að ökumaður á rafmagnsbíl var á leið upp úr göngunum norðan megin og átti aðeins fimm prósent eftir af rafhlöðu bifreiðarinnar. Var hann á sjö kílómetra hraða á klukkustund vegna þessa og kom þá annar ökumaður aðvífandi á…Lesa meira

true

Áfram um skólamál í Eyja- og Miklaholtshreppi

Sveitarstjórn í Eyja- og Miklaholtshreppi ákvað á fundi sínum fimmtudaginn 9. mars að boða til íbúafundar til þess að kynna forsendur ákvörðunar sveitarfélagsins um að loka Laugargerðisskóla í vor, náist samningar við annað sveitarfélag um skólaþjónustu. Sigurbjörg Ottesen, oddviti í Eyja- og Miklaholtshreppi, segir í samtali við Skessuhorn að fundurinn verði auglýstur á næstu dögum…Lesa meira

true

Kvenfélagið Fjóla nærir nærsamfélagið

Kvenfélagið Fjóla í Dölunum er býsna öflugt í fjáröflunarverkefnum. Helstu fjáröflunarleiðir félagsins eru bingó, spilakvöld, sauðburðarbakkelsi, erfidrykkjur og pönnukökubakstur fyrir fyrirtæki í héraði síðasta vetrardag. Þrátt fyrir að vera tiltölulega fámennt félag hefur það styrkt ýmis samtök og verkefni um einhver hundruð þúsunda ár hvert. Kvenfélagið var stofnað 31. júlí 1927. Í því eru nú…Lesa meira

true

Eimskip gerist einn af aðal styrktaraðilum Landsbjargar

Eimskip og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa gert með sér samstarfssamning þess efnis að Eimskip gerist einn af aðal styrktaraðilum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, með sérstaka áherslu á að styðja við björgunarstarf og forvarnir á sjó og landi. Í sameiningu munu félögin vekja sérstaka athygli á slysavarnaverkefninu Örugg á ferðinni, sem snertir á öllum flötum samgangna, og sérstaklega hvetja…Lesa meira

true

Leiðbeiningar fyrir blaðaáskrifendur sem vilja bæta við sig vefáskrift

Í lok febrúar bættist vefáskrift að skessuhorn.is við sem áskriftarmöguleiki hjá Skessuhorni. Vefáskrift ein og sér kostar 1.998 krónur á mánuði og gefur aðgang að mestöllu efni sem framleitt er á ritstjórn. Áskrifendum blaðs býðst að kaupa vefáskrift á hálfvirði, eða fyrir 999 krónur á mánuði. Vilji núverandi blaðaáskrifendur bæta við sig vefáskrift er þeim…Lesa meira

true

Viðamikil skýrsla um kornrækt kynnt

Á morgun kl. 11 fer fram kynningarfundur um nýja skýrslu um eflingu kornræktar í landinu. Fundurinn verður í Reykjavík en honum verður samhliða streymt á vef matvælaráðuneytisins. Ráðherra setur fundinn en á honum mun Helgi Eyleifur Þorvaldsson, aðjúnkt og brautastjóri búfræðibrautar við LbhÍ, kynna skýrsluna og sitja fyrir svörum ásamt þeim Agli Gautasyni lektor við…Lesa meira

true

FVA tekur þátt í Íslandsmóti iðn- og verkgreina

Íslandsmót iðn- og verkgreina verður haldið í vikunni í Laugardalshöllinni í Reykjavík og stendur yfir frá fimmtudegi til laugardags. „Mín framtíð“ er yfirskrift viðburðarins en einnig verður í gangi kynning á framhaldsskólum landsins. Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi verður með glæsilegan bás á svæðinu. Unnur Jónsdóttir, grafískur hönnuður, hannaði kynningarefni fyrir skólann og stendur hópur nemenda…Lesa meira

true

Grunnskólarnir í Borgarfirði völdu fulltrúa í SamVest

Undanfarnar vikur hafa söngkeppnir farið fram í grunnskólum á Vesturlandi þar sem fulltrúar hvers skóla hafa verið valdir til að keppa í söngkeppni SamVest. SamVest er undankeppni skóla á Vesturlandi fyrir Söngkeppni Samfés sem fram mun fara í Reykjavík 6. maí næstkomandi. SamVest verður í ár haldið í Búðardal á fimmtudaginn næsta, 16. mars. Sameiginleg…Lesa meira