
Leiðbeiningar fyrir blaðaáskrifendur sem vilja bæta við sig vefáskrift
Í lok febrúar bættist vefáskrift að skessuhorn.is við sem áskriftarmöguleiki hjá Skessuhorni. Vefáskrift ein og sér kostar 1.998 krónur á mánuði og gefur aðgang að mestöllu efni sem framleitt er á ritstjórn. Áskrifendum blaðs býðst að kaupa vefáskrift á hálfvirði, eða fyrir 999 krónur á mánuði.
Vilji núverandi blaðaáskrifendur bæta við sig vefáskrift er þeim bent á að fara í pöntunarformið á vefsíðunni og velja þar „búa til aðgang“. Athugið að staðfestingarkóði kemur á tölvupósti til að ljúka við stofnun aðgangsins. Þegar búið er að fylla inn upplýsingar og stofna aðganginn velur áskrifandinn bæði blaðaáskrift og vefáskrift í pöntunarforminu, jafnvel þótt þeir séu blaðáskrifendur fyrir. Þegar báðir reitir, vefáskrift og blaðaáskrift, eru orðnir grænir í pantanaforminu kemur afslátturinn sjálfkrafa fram og hægt er að ganga frá kaupum. Þegar áskriftarkaupin hafa gengið í gegn eyðist fyrrum krafa vegna blaðaáskriftar úr kerfi Skessuhorns.