
Unnur Jónsdóttir er með aðstöðu á 2. hæð á Breið. Ljósm. vaks
„Gaman að vera hluti af fjölbreyttum hópi skapandi einstaklinga“
Unnur Jónsdóttir er grafískur hönnuður með starfsaðstöðu í Nýsköpunarsetrinu á Breið á Akranesi. Hún var ein af frumkvöðlunum sem fluttu starfsemi sína þangað í nóvember 2021. Þá var hún að að vinna verkefni með fyrirtækinu Arttré en þau fluttu snemma starfsemi sína í húsið. „Áður var ég að vinna heima frá 2015 og munurinn er ótrúlegur, faglega og félagslega.“ En hver eru hennar helstu verkefni? „Verkefnin eru fjölbreytt, ég hef verið að vinna með Arttré að hönnunarverkefnum auk verkefna fyrir alls kyns fyrirtæki og einkaaðila. Þá hafa samlegðaráhrifin við að vera á Breið skilað mér ýmsum spennandi verkefnum. Svo héldum við frændsystkinin listasýninguna „E sjó sjó“ hér í gömlu kassageymslunni á síðustu Vökudögum sem var mjög skemmtilegt.“