Laugargerðisskóli.

Áfram um skólamál í Eyja- og Miklaholtshreppi

Sveitarstjórn í Eyja- og Miklaholtshreppi ákvað á fundi sínum fimmtudaginn 9. mars að boða til íbúafundar til þess að kynna forsendur ákvörðunar sveitarfélagsins um að loka Laugargerðisskóla í vor, náist samningar við annað sveitarfélag um skólaþjónustu. Sigurbjörg Ottesen, oddviti í Eyja- og Miklaholtshreppi, segir í samtali við Skessuhorn að fundurinn verði auglýstur á næstu dögum en mikil ólga hefur verið í sveitarfélaginu eftir að ákvörðun sveitarstjórnar var kunngjörð 20. febrúar síðastliðinn. Erindi frá Eyja- og Miklaholtshreppi liggur á borði Sveitarfélagsins Stykkishólms um frekari viðræður varðandi skólamál.

Áfram um skólamál í Eyja- og Miklaholtshreppi - Skessuhorn