
Magnús Eggertsson bóndi í Ásgarði að þreskja korn. Ljósm. úr safni
Viðamikil skýrsla um kornrækt kynnt
Undir hádegi í dag var kynningarfundur á Hilton Reykjavík Nordica um nýja skýrslu um eflingu kornræktar í landinu. Matvælaráðuneytið stóð fyrir fundinum. Ráðherra setti fundinn en Helgi Eyleifur Þorvaldsson, aðjúnkt og brautastjóri búfræðibrautar við LbhÍ kynnti skýrsluna og sat fyrir svörum ásamt þeim Agli Gautasyni lektor við deild ræktunar og fæðu hjá LbhÍ og Hrannari Smára Hilmarssyni tilraunastjóra í jarðrækt hjá LbhÍ en þeir þrír eru höfundar skýrslunnar.