Fréttir

true

Kári þéttir raðirnar fyrir þriðju deildina

Síðasta hálfan mánuð hefur verið nóg að gera á skrifstofunni hjá Knattspyrnufélaginu Kára á Akranesi sem leikur í 3. deildinni næsta sumar. Alls hafa 14 leikmenn gengið til liðs við félagið og þar af sex leikmenn frá ÍA og sex frá Skallagrími í Borgarnesi. Frá ÍA koma þeir Björn Darri Ásmundsson, Sveinn Svavar Hallgrímsson og…Lesa meira

true

Brákarhlíð sækir um leyfi fyrir niðurrifi á Borgarbraut 63

Í fundargerð um afgreiðslur byggingarfulltrúa Borgarbyggðar síðasta miðvikudag kemur fram að Brákarhlíð hjúkrunar- og dvalarheimilið, sem er við Borgarbraut 65 í Borgarnesi, hafi sótt um leyfi fyrir því að húsið sem stendur við Borgarbraut 63 verði rifið. Það er kallað Sumarliðahús af gömlum Borgnesingum en þar bjó Sumarliði Sigmundsson frá Gróf í Reykholtsdal fyrir miðja…Lesa meira

true

Stefnt að því að taka skóflustungu að nýrri íþróttamiðstöð í vor

Á fundi byggðarráðs Dalabyggðar 22. febrúar var sveitarstjóra og formanni byggðarráðs falið að ganga frá samningum við Eykt ehf. um byggingu íþróttamiðstöðvar í Búðardal. Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri, segir í samtali við Skessuhorn að komið sé á munnlegt samkomulag milli sveitarfélagsins og Eyktar en tilboð Eyktar hljóðar upp á rétt tæpan 1,2 milljarð króna. Dalabyggð…Lesa meira

true

Endurtelja skal ef innan við 20 atkvæði ber á milli

Ný, en gölluð, kosningalög tóku gildi 1. janúar 2022 og reyndi fyrst á beitingu þeirra og þar með galla í sveitarstjórnarkosningum sem haldnar voru vorið 2022. Við framkvæmd laganna komu í ljós ýmsir vankantar sem nauðsynlegt þótti að lagfæra við fyrsta tækifæri og er skemmst að minnast mikilla áhrifa hæfisreglu laganna á skipan kjörstjórna. Nú…Lesa meira

true

Þetta er allt svo skemmtilegt

Rætt við Halldór Þorgils Þórðarson frá Breiðabólsstað á Fellsströnd í Dölum. „Mér var ýtt út í tónlistina,“ segir Halldór Þorgils Þórðarson organisti sem séð hefur um messuspil og kórstjórn í kirkjum Dalabyggðar í ein 66 ár. Halldór kom að stofnun Þorrakórsins á Fellsströnd árið 1963 og hefur stjórnað þeim kór allar götur síðan. Auk þess…Lesa meira

true

Stofnfundur félags fólks með offitu

Laugardaginn 4. mars núkomandi er alþjóðlegur dagur offitu. „Hér á Íslandi tökum við þátt í deginum með því að stofna fyrstu samtök landsins skipuð af fólki með offitu. Stofnfundurinn verður haldinn í sal Hjálpræðishersins að Suðurlandsbraut 72 í Reykjavík og hefst klukkan 13:00. Við hlökkum til að sjá sem flesta,“ segir í tilkynningu og bætt…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík fær liðsstyrk

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvíkur hefur samið við marokkóska leikmanninn Abdelhadi Khalok um að leika með liðinu í 2. deildinni næsta sumar sem hefst í byrjun maí. Fram kemur á FB síðu félagsins að Khalok sem er fæddur og uppalinn á Spáni sé 26 ára sóknarmaður og þyki mjög hraður og teknískur leikmaður. Hann er væntanlegur til…Lesa meira

true

Færði Mæðrastyrksnefnd 110 páskaegg til úthlutunar

Hún Andrea Þ. Björnsdóttir á Akranesi gerir það ekki endasleppt í söfnun sinni og aðstoð við þá sem höllum fæti standa, ýmist fjárhagslega, félagslega eða heilsufarslega. Oft á ári fer hún t.d. suður í Garðabæ og sækir í Góu afskurð af lakkrís sem hún selur síðan í heimabyggð. Í seinni tíð kosta fyrirtæki eða einstaklingar…Lesa meira

true

Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

Búið er að opna fyrir umsóknir um nýsköpunarstyrki úr Lóu en það er sjóður sem hefur það hlutverk að styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum. Fram kemur á vef stjórnarráðsins að styrkjunum sé aðeins úthlutað til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti,…Lesa meira

true

Bárður með tæp þúsund tonn í febrúar – MYNDIR

Sumir bátar frá höfnum Snæfellsbæjar hafa að undanförnu ekki róið stíft sökum veðurs og þá er kvótastaða margra ekki of góð. Þó er allur gangur á þessu, en eins og lesa má í aflatölum vikunnar hér í blaðinu þá landaði netabáturinn Bárður SH ellefu sinnum í vikunni sem leið, alls 282 tonnum í Rifi. Mest…Lesa meira