Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

Búið er að opna fyrir umsóknir um nýsköpunarstyrki úr Lóu en það er sjóður sem hefur það hlutverk að styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum. Fram kemur á vef stjórnarráðsins að styrkjunum sé aðeins úthlutað til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni.

Nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina - Skessuhorn