
Tryggvi Hafsteinsson og Emir Dokara voru hressir við löndun úr Bárði. Ljósm. af
Bárður með tæp þúsund tonn í febrúar – MYNDIR
Sumir bátar frá höfnum Snæfellsbæjar hafa að undanförnu ekki róið stíft sökum veðurs og þá er kvótastaða margra ekki of góð. Þó er allur gangur á þessu, en eins og lesa má í aflatölum vikunnar hér í blaðinu þá landaði netabáturinn Bárður SH ellefu sinnum í vikunni sem leið, alls 282 tonnum í Rifi. Mest var landað 70 tonnum eftir einn róðurinn og suma dagana var tvílandað. Bárður var kominn með hátt í 900 tonn þegar einn dagur var eftir að febrúarmánuði.