Fréttir

true

Blóðsöfnun á Akranesi á morgun

Blóðbankabíllinn verður á ráðhússplaninu við Stillholt 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 17. janúar frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir hvattir til að mæta og gefa blóð.Lesa meira

true

Nýr hagvísir kominn út um Vesturland

Fyrir helgina fór Hagvísirinn „Búferlaflutningar á Vesturlandi“ á vefinn. Þar er m.a. kannaður uppruni nýrra íbúa og áfangastaður þeirra sem flytja brott, vægi flutningsjafnaðar og hreyfanleiki íbúanna. Skýrslan er eftir Vífil Karlsson hagfræðing. Í henni kemur m.a. fram að í langflestum sveitarfélögum á Vesturlandi hefur orðið breyting á búferlaflutningum. Íbúar af Vesturlandi fluttu síðastliðin ár…Lesa meira

true

Enn hefur leitin ekki borið árangur

Í gær var fjölmenni við leit að Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni sem saknað hefur verið frá því laugardaginn 7. janúar. Auk björgunarsveitarfólks úr héraði hafa ýmsir fleiri lagt lið við þetta stóra leitarverkefni; björgunarsveitarfólk víða af landinu, sjálfboðaliðar, kvenfélagskonur og fyrirtæki sem gefið hafa matvæli. Þá hefur þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, sérsveitarmenn og lögreglumenn úr héraði…Lesa meira

true

,,Ég hef áhuga á því að dafna hér og rækta það sem fyrir er með nýrri mold“

Rætt við söngkonuna og kórstjórann Hólmfríði Friðjónsdóttur Hólmfríður Friðjónsdóttir, eða Fríða eins og hún er oft kölluð, fluttist búferlum frá Stykkishólmi í Reykholt í Borgarfirði þegar henni bauðst staða kórstjóra Freyjukórsins árið 2019. Hólmfríður segir sig aldrei hrædda við að segja já og er dugleg að taka stökkið þegar ný tækifæri bjóðast. Hún hefur mikla…Lesa meira

true

Mjög öflugt íþróttafólk í héraðinu

Kjöri íþróttamanneskju Borgarfjarðar var lýst í Hjálmakletti í Borgarnesi á þrettándanum. Nýtt heiti hefur verið tekið upp á verðlaun þessi, en að öðru leyti sama viðurkenning og mörg undanfarin ár. Að kjörinu standa Ungmennasamband Borgarfjarðar og sveitarfélögin á starfssvæðinu. Ýmis verðlaun voru afhent, svo sem hvatningarverðlaun, verðlaun fyrir setu í landsliðum og Auðunsbikar. Mjög öflugur…Lesa meira

true

Heimildin er nýr fjölmiðill á grunni Stundarinnar og Kjarnans

Fjölmiðlarnir Stundin og Kjarninn hafa nú formlega sameinast í einn miðil sem hér eftir ber nafnið Heimildin. Fyrsta tölublað Heimildarinnar er komið út og nýr vefur kominn í loftið. „Fram undan er vegferð sem hófst með samtali aðstandenda Stundarinnar og Kjarnans síðasta haust. Þá var þeirri spurningu varpað fram hvort fjölmiðlarnir myndu verða sterkari saman,…Lesa meira

true

Alex Davey semur við ÍA til eins árs

Varnarmaðurinn Alexander Davey, sem hefur leikið með Skagamönnum síðustu tvö ár, hefur gert samning við ÍA sem gildir út tímabilið 2023. Alex er fæddur árið 1994 og hefur leikið alls 28 deildarleiki og skorað tvö mörk fyrir ÍA á þessum tíma. Í byrjun nóvember kom fram í tilkynningu á FB síðu Knattspyrnufélags ÍA að heimild…Lesa meira

true

Heiður fær fjölmörg tilboð frá háskólum í Ameríku

Heiður Karlsdóttir körfuknattleikskona, sem nú spilar með Fjölni í Grafarvogi, hefur samkvæmt heimildum karfan.is fengið tilboð frá 35 skólum í bandaríska háskólaboltanum um námsstyrk og að spila með liðum skólanna. Hún mun þó ekki fara út eftir yfirstandandi tímabil, þar sem að hún á enn eitt ár eftir af framhaldsskóla hérlendis. Samkvæmt heimildum Körfunnar er…Lesa meira

true

Vörslusvipting búfjár vegna veikinda bóndans

Matvælastofnun hefur vörslusvipt bónda á Suðurlandi öllum gripum þar sem engin fékkst til þess að sjá um gripi í veikindum hans. „Vegna veðurfarslegra aðstæðna var ekki hægt að bíða með þessar aðgerðir því vegna dýravelferðar hefði þurft að tryggja gripum aðgengi að vatni og fóðri. Nautgripir og hross voru send til slátrunar en sauðfé og…Lesa meira

true

Frosthörkur verða fram yfir helgi

Veðurstofan spáir því að um helgina verði norðaustan- og austan 5-15 m/s á landinu, en hvassast syðst. Í dag verða lítilsháttar él, en bjartviðri suðvestanlands. Frost verður frá 2 til 16 stig og kaldast í innsveitum á Norðurlandi. Norðaustan og norðan 5-13 m/sek á morgun og léttskýjað, en stöku él á Norður- og Austurlandi. Frost…Lesa meira