Fréttir

true

Bjóða sókninni líkhúsið að gjöf

Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar síðastliðinn fimmtudag var lögð fram ályktun aðalsafnaðarnefndarfundar Ólafsvíkurkirkju varðandi líkhúsið í Ólafsvík. Bæjarfélagið á eins og kunnugt er húsið en sóknirnar hafa rekið það. Nú er umsjónaraðili hússins á förum úr bæjarfélaginu og ekki hefur fengist aðili í hans stað. Þá er fyrirsjáanlegt viðhald á húsinu. Var bókað á fundi bæjarstjórnar:…Lesa meira

true

Ingi Þór lætur af störfum

Ingi Þór Guðmundsson vann sinn síðasta vinnudag í Netagerð G.Run í Grundarfirði í gær, föstudaginn 29. september. Af því tilefni var blásið til veislu og kappinn kvaddur eftir áratuga starf. Ingi er einn af eigendum G.Run og hefur starfað við fjölskyldufyrirtækið frá barnsaldri. Hann var mörg ár á sjó áður en hann kom í land…Lesa meira

true

Ráðstefnan Nýsköpun í vestri fór fram í Borgarnesi – myndasyrpa

Ráðstefnan Nýsköpun í vestri er samstarfsverkefni Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi, Nývest og SSV en verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands. Ráðstefnan fór í dag fram í Hjálmakletti í Borgarnesi en um fimmtíu manns taka þátt í ráðstefnunni sem fer nú fram í fyrsta skipti. Bjargey Anna Guðbrandsdóttir er framkvæmdastjóri Gleipnis sem stóð fyrir…Lesa meira

true

Ellefu fengu styrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands

Ellefu verkefni fengu styrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands þegar úthlutun fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi í dag. Var dagskráin hluti af ráðstefnunni Nýsköpun í vestri sem hófst í morgun og lauk síðdegis. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir úthlutuninni en alls var rúmum 10,6 milljónum króna úthlutað. Bárust 23 umsóknir. Eftirfarandi verkefni hlutu styrki: Snæfellsnes…Lesa meira

true

„Markmiðið að halda sæti okkar í deildinni“

Kvennalið Snæfells í körfuknattleik leikur í Subway deildinni í vetur eftir nokkurra ára fjarveru. ÍR gaf frá sér sitt sæti í Subway deildinni í sumar en Snæfell endaði í þriðja sæti í 1. deild á síðasta tímabili. Síðast lék Snæfell í efstu deild tímabilið 2020-2021 en eftir það var tekin sú ákvörðun að færa liðið…Lesa meira

true

Vinkonur í meira en 70 ár

Það var mikil gleði sem ríkti þegar vinkonurnar Anna Kristín Þórarinsdóttir, Guðbjörg Elísdóttir, Guðfinna Sigurðardóttir, Hanný Rut Guðbjarnadóttir og Þóra Elísabet Hallgrímsdóttir hittust í gær. Tilefnið var 80 ára afmæli Guðfinnu eða Finnu eins og hún er ávallt kölluð. Hún bauð til veislu í sal á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ þar sem fjölskylda og vinir…Lesa meira

true

Erla Rún ráðin verkefnastjóri Rannsóknaseturs skapandi greina

Gengið hefur verið frá ráðningu Erlu Rúnar Guðmundsdóttur sem verkefnastjóra Rannsóknaseturs skapandi greina. Háskólinn á Bifröst heldur utan um starfsemi setursins sem er fjármagnað með framlagi frá menningar- og viðskiptaráðuneyti og háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðuneyti. Rannsóknarstefna setursins verður byggð á skýrslunni Sköpunarkrafturinn – orkugjafi 21. aldar sem út kom í maí í vor. Setrið var…Lesa meira

true

Sigrún Erla er nýr forstöðumaður á Jaðri í Ólafsvík

Sigrún Erla Sveinsdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri í Ólafsvík og tekur við starfinu á sunnudaginn. Sigrún Erla er fædd og uppalin í Snæfellsbæ og öllum hnútum kunnug á heimilinu þar sem hún hefur starfað til fjölda ára. Frá þessu er greint á upplýsingasíðu Snæfellsbæjar. Sigrún Erla er menntaður…Lesa meira

true

Borgarbyggð birtir afkomu sína fyrri hluta árs

Árshlutauppgjör Borgarbyggðar fyrstu sex mánuði ársins var kynnt í byggðarráði í gær. Í bókun segir að rekstur sveitarfélagsins hafi gengið vel og að afkoman hafi batnað talsvert á milli ára. Tekjur A-hluta sveitarsjóðs jukust um 22% á fyrri hluta ársins og námu um 2,6 milljörðum króna. Þar af jukust útsvarstekjur um liðlega 17% en útsvar…Lesa meira

true

Samkeppniseftirlitið heimilar kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar

Samkeppniseftirlitið birti í dag ákvörðun sína þess efnis að kaup Ljósleiðarans ehf. á stofnneti Sýnar hf. eru samþykkt án skilyrða.  Með þessu er síðasta fyrirvara í samningi félaganna aflétt en áður hafði fyrirvörum um m.a. áreiðanleikakönnun og fjármögnun þessa þriggja milljarða króna kaupsamnings verið aflétt. Samhliða kaupsamningi var gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára…Lesa meira