Frá vinstri: Þóra Beta, Finna, Hanný, Dubba og Anna Stína. Ljósm. vaks

Vinkonur í meira en 70 ár

Það var mikil gleði sem ríkti þegar vinkonurnar Anna Kristín Þórarinsdóttir, Guðbjörg Elísdóttir, Guðfinna Sigurðardóttir, Hanný Rut Guðbjarnadóttir og Þóra Elísabet Hallgrímsdóttir hittust í gær. Tilefnið var 80 ára afmæli Guðfinnu eða Finnu eins og hún er ávallt kölluð. Hún bauð til veislu í sal á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ þar sem fjölskylda og vinir voru mættir til að heiðra afmælisbarnið. Finna flutti þar inn fyrir þremur mánuðum og dvelur þar í góðu yfirlæti en á Hrafnistu Ísafold eru hjúkrunarrými fyrir 60 íbúa þar sem veitt er sólarhrings hjúkrunar- og læknisþjónusta. Vinkonurnar fimm sem eru allar af Skaganum kynntust í Barnaskóla Akraness þegar þær stunduðu þar nám í grunnskóla og hafa haldið góðum vinskap síðan eða í meira en 70 ár.

Vinkonur í meira en 70 ár - Skessuhorn