
Ingi Þór kampakátur með gullmedalíu um hálsinn fyrir fyrsta sætið í spilinu ruslakall en það spil er iðulega spilað í kaffitímunum í netagerðinni. Ljósmyndir: tfk
Ingi Þór lætur af störfum
Ingi Þór Guðmundsson vann sinn síðasta vinnudag í Netagerð G.Run í Grundarfirði í gær, föstudaginn 29. september. Af því tilefni var blásið til veislu og kappinn kvaddur eftir áratuga starf. Ingi er einn af eigendum G.Run og hefur starfað við fjölskyldufyrirtækið frá barnsaldri. Hann var mörg ár á sjó áður en hann kom í land og starfaði við netagerðina síðustu 30 árin eða svo.