Baldur Þorleifsson þjálfari Snæfells. Ljósm. aðsend

„Markmiðið að halda sæti okkar í deildinni“

Kvennalið Snæfells í körfuknattleik leikur í Subway deildinni í vetur eftir nokkurra ára fjarveru. ÍR gaf frá sér sitt sæti í Subway deildinni í sumar en Snæfell endaði í þriðja sæti í 1. deild á síðasta tímabili. Síðast lék Snæfell í efstu deild tímabilið 2020-2021 en eftir það var tekin sú ákvörðun að færa liðið úr efstu deild niður um deild og hefja uppbyggingarstarf sem miðaði að því að koma samkeppnishæfu liði í efstu deild að nýju. Baldur Þorleifsson tók þá við stjórnartaumunum og er á sínu þriðja ári með liðið.

„Markmiðið að halda sæti okkar í deildinni“ - Skessuhorn