
Borgarbyggð birtir afkomu sína fyrri hluta árs
Árshlutauppgjör Borgarbyggðar fyrstu sex mánuði ársins var kynnt í byggðarráði í gær. Í bókun segir að rekstur sveitarfélagsins hafi gengið vel og að afkoman hafi batnað talsvert á milli ára. Tekjur A-hluta sveitarsjóðs jukust um 22% á fyrri hluta ársins og námu um 2,6 milljörðum króna. Þar af jukust útsvarstekjur um liðlega 17% en útsvar er um 50% tekna sveitarfélagsins. Á sama tíma jukust rekstrargjöld um 13% og munar þar mestu um hækkun launakostnaðar upp á 13% en laun og launatengd gjöld voru um 63% af gjöldum sveitarfélagsins fyrir afskriftir. Að frádregnum fjármagnsliðum var rekstrarniðurstaðan A hluta neikvæð um 23 milljónir króna, sem skýrist af hækkun verðtryggðra lána. Það er 30 milljónum króna betri afkoma en áætlað hafði verið. Uppgjör fyrstu sex mánaða ársins sýnir fjárfestingu í varanlegum rekstrarfjármunum upp á 77 milljónir króna en á sama tíma hefur lausafjárstaða sveitarfélagsins styrkst og greitt hefur verið inn á lán í stað þess að taka ný lán. Veltufé frá rekstri fyrstu sex mánuði ársins var 200 m.kr. og handbært fé frá rekstri 456 m.kr.