Fréttir

true

Húsasmíði og opin stúdentsbraut vinsælast í FVA

Skólastarf í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er komið í fullan gang eftir sólríkt og gott sumar. Alls eru 524 nemendur í skólanum, bæði í bóklegu og verklegu námi og er það nokkur fjölgun frá því í fyrra. Í boði er fyrir dagskólanemendur, auk stúdentsbrauta með ýmsum sérsviðum, að stunda nám í húsasmíði, rafvirkjun og vélvirkjun.…Lesa meira

true

Skallagrímur og Reynir töpuðu um helgina

Skallagrímur tók á móti liði KÁ í 4. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn á vel grænum Skallagrímsvelli og þurfti að sætta sig við tap. Skallagrímur var betri aðilinn í fyrri hálfleik og Sölvi Snorrason fékk dauðafæri snemma leiks þegar hann fékk boltann hægra megin í teignum en skaut framhjá. Gestirnir komust yfir á 21.…Lesa meira

true

Kári missti niður tveggja marka forystu og mann af velli

Kári gerði sér ferð norður á Blönduós í gær þegar þeir sóttu heim lið Kormáks/Hvatar í 3. deild karla í knattpyrnu. Kolbeinn Tumi Sveinsson kom Kára yfir á sjöttu mínútu og var síðan aftur á ferðinni á þriðju mínútu í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Staðan í hálfleik 0-2 Kára í hag og útlitið ansi gott. En…Lesa meira

true

Einar Skúlason er látinn

Einar Skúlason fyrrum æskulýðsfulltrúi og rekstrarstjóri vinnuskólans á Akranesi lést laugardaginn 19. ágúst eftir stutta baráttu við krabbamein, 66 ára að aldri. Einar lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Eftir útskrift vann hann um tíma fjölbreytta vinnu en hóf svo að kenna í lausamennsku við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þar kenndi hann í tíu ár, aðallega…Lesa meira

true

Tuttugasta starfsár FSN er hafið

Í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði verða 164 nemendur í vetur sem er töluverð fækkun frá því í fyrra. FSN tók til starfa haustið 2004 og er tuttugasta starfsár skólans því hafið. Þá hefur frá árinu 2007 verið rekið framhaldsdeild á Patreksfirði. Nýnemadagur var miðvikudaginn 16. ágúst og hófst kennsla fimmtudagsmorguninn 17. ágúst að lokinni skólasetningu.…Lesa meira

true

Skagakonur með stórsigur á Völsungi

ÍA og Völsungur áttust við í 2. deild kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Norðurálsvelli á Akranesi. Toppbaráttan í deildinni er afar spennandi og eins og staðan er núna eru átta lið af ellefu að berjast um þessi tvö sæti sem gefa þátttökurétt í Lengjudeildinni á næsta ári. Skagakonur voru með yfirhöndina…Lesa meira

true

Forsetinn í Hopplandi – MYNDSKEIÐ

Blaðamaður Skessuhorns fór í hjólatúr í góða veðrinu á Akranesi í gær og kom við á bryggjunni við Bakkatún í Hopplandi þar sem margir voru að stökkva í sjóinn sér til skemmtunar. Þar hitti hann á forseta vor, Guðna Th. Jóhannesson, sem var ásamt tveimur sonum sínum að njóta blíðunnar. Í stuttu spjalli við blaðamann…Lesa meira

true

Fjölmenni á afmæli Beint frá býli samtakanna – myndir

Öll fyrri aðsóknarmet voru í gær slegin á Geitfjársetrinu á Háafelli í Hvítársíðu, en þá fór þar fram 15 ára afmælisfögnuður Vesturlandsdeildar samtakanna Beint frá býli. Fjölskyldur, stórar sem smáar, mættu í sólskininu og nýttu sér tækifærið að frítt var inn á svæðið auk þess sem kaffi, djús og kökur voru í boði og allskyns…Lesa meira

true

Skagamenn gerðu jafntefli við Þrótt

Þróttur og ÍA mættust í Lengjudeild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á gervigrasvelli Þróttar í Laugardalnum. Skagamenn komust yfir í leiknum strax á þriðju mínútu þegar Árni Marinó Einarsson markvörður ÍA tók langt útspark og Albert Hafsteinsson fékk boltann, rakti hann að teignum og setti hann niðri í hægra hornið. Heimamenn í…Lesa meira