Fréttir

true

Styrkir til nýsköpunar og atvinnuþróunar

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í haustúthlutun Uppbyggingarsjóðs Vesturlands, en umsóknarfrestur er til og með 7. september nk. Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands. Í þessari úthlutun…Lesa meira

true

Tóku þátt í Íslandsmóti 60+ í pútti

Íslandsmót 60+ í pútti var haldið í Reykjanesbæ síðastliðinn fimmtudag. Umsjón og framkvæmd mótsins var í höndum Púttklúbbs Suðurnesja. Leikið var á tveimur frábærum átján holu völlum 2×18 holur, alls 36. Veður var nokkuð gott, hlýtt en smá rigning. Suðurnesjamenn tóku vel á móti keppendum með súpu, brauði og kaffi fyrir keppni, en í loks…Lesa meira

true

Bændafundur í Borgarnesi á morgun

Stjórn og starfsfólk Bændasamtaka Íslands heldur á næstu dögum fundi með bændum víðs vegar um landið. Fjallað verður um starfsemi Bændasamtakanna, málefni sveitanna og komandi tíð, eins og segir í fundarboði. Fyrsti fundurinn í þessari fundaröð verður í Borgarnesi fyrir hádegi á morgun, mánudaginn 21. ágúst. Fer hann fram í sal Hótel B-59 við Borgarbraut…Lesa meira

true

Ný og endurbætt leikskólalóð í Stykkishólmi

Starf Leikskólans í Stykkishólmi er nú hafið aftur eftir sumarfrí. Ætla má að yngstu börnin hafi verið sérlega ánægð þegar þau mættu til skóla og við blasti ný og endurbætt leikskólalóð. Fram kemur á vef sveitarfélagsins að nýverið var lokið við frágang á lóðinni við nýja viðbyggingu skólans sem ætluð er yngstu börnunum. Á lóðinni…Lesa meira

true

Ný hleðslustöð á Reykhólum

Nýlega setti Orkubú Vestfjarða upp hleðslustöð fyrir bíla á Reykhólum. Þetta eru tvær AC hæghleðslustöðvar, 22kW og hægt að tengja tvo bíla við hvora stöð, þ.e. fjórir bílar geta verið í sambandi í einu. Stutt er í hraðhleðslu í Bjarkalundi, um 15 kílómetrar en þar er 150kW stöð. Orkubú Vestfjarða hefur gert samning við e1…Lesa meira

true

Gréta Sigríður er nýr fréttamaður RÚV á Vesturlandi og Vestfjörðum

Gréta Sigríður Einarsdóttir hefur verið ráðin í starf fréttamanns RÚV á Vesturlandi og Vestfjörðum. Hún hefur störf með haustinu. Í rúmt ár hefur RÚV ekki verið með fréttamann í þessum tveimur landshlutum, en Skagakonan Elsa María Guðlaugs- Drífudóttir sinnti starfinu í þrjú ár, fram til ágúst 2022. Gréta er uppalin í Borgarnesi, dóttir Guðrúnar Jónsdóttur…Lesa meira

true

Rekstri Skagans 3X á Ísafirði hætt og starfsfólki sagt upp

Stjórn Skagans 3X hefur ákveðið að leggja niður starfsstöð fyrirtækisins á Ísafirði og hefur öllum 27 starfsmönnum fyrirtækisins þar verið sagt upp störfum. Ákvörðunin byggir á umfangsmikilli endurskipulagningu og hefur þegar verið kynnt bæjaryfirvöldum á Ísafirði og verkalýðsfélögum. „Rekstur Skagans 3X hefur verið mjög þungur síðustu misseri og eins og áður hefur komið fram þurfti…Lesa meira

true

Nýr stöðvarstjóri N1 í Ólafsvík

Aría Jóhannesdóttir tók um miðjan júní við sem stöðvarstjóri í verslun N1 í Ólafsvík af Einari Rúnari Ísfjörð sem lét af störfum í lok maí. Auk hennar eru Gunnlaugur Páll Einarsson og Guðný Clausen fastráðnir starfsmenn í versluninni. Aría segir að vel hafi gengið þessa fyrstu tvo mánuði hjá sér í þessari nýju vinnu: „Það…Lesa meira

true

Nú er bannað að selja grágæs – nema hún sé uppstoppuð

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum. Nú er óheimilt að bjóða til sölu eða selja grágæs og afurðir hennar. Einnig er óheimilt að flytja hana út. Heimilt er þó að selja uppstoppaða gæs. „Á undanförnum árum hefur grágæsarstofninum hnignað og er sölubann sett fram…Lesa meira

true

Rallað um Vesturland um helgina

Nú um helgina, dagana 18.-20. ágúst, fer Reykjavíkur Rallý fram og er keppnin styrkt af Hreinsitækni. Ekið verður víðsvegar um suðvesturhorn landsins. Ræst verður í keppnina síðdegis í dag frá Smáratorgi og meðal annnars ekið við Djúpavatn. Á morgun laugardag verður svo ekið um Snæfellsnes. Til dæmis um Berserkjahraun, Prestahraun og Jökulháls en endað annað…Lesa meira