
Rallað um Vesturland um helgina
Nú um helgina, dagana 18.-20. ágúst, fer Reykjavíkur Rallý fram og er keppnin styrkt af Hreinsitækni. Ekið verður víðsvegar um suðvesturhorn landsins. Ræst verður í keppnina síðdegis í dag frá Smáratorgi og meðal annnars ekið við Djúpavatn. Á morgun laugardag verður svo ekið um Snæfellsnes. Til dæmis um Berserkjahraun, Prestahraun og Jökulháls en endað annað kvöld á viðgerðarstoppi við Olís í Borgarnesi þar sem fyrsti bíll er væntanlegur um klukkan 20:30. Á sunnudaginn liggur leiðin um Kaldadal og Uxahryggi í Borgarfirði en endað við Djúpavatn.