Fréttir

true

Fjórtánda stýrivaxtahækkunin í röð

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun um fjórtándu stýrivaxtahækkunina í röð. Vextir eru nú hækkaðir um 0,5 prósentustig og fara úr 8,75 prósentum í 9,25%. Í yfirlýsingu stofnunarinnar segir að verðbólga hafi hjaðnað undanfarið og mælst 7,6% í júlí. „Framlag húsnæðisliðarins til verðbólgu hefur minnkað, dregið hefur úr alþjóðlegum verðhækkunum og gengi krónunnar hækkað. Innlendar…Lesa meira

true

Vel heppnuð kaffisala í Ölveri

Á sunnudaginn var haldin kaffisala í sumarbúðum KFUM og K í Ölveri við rætur Hafnarfjalls og tókst hún með eindæmum vel. Kaffisalan í Ölveri er árlegur viðburður sem fram fer að loknu sumarstarfi. Gestum og gangandi gefst þá tækifæri til að kynna sér staðinn og starfsemina þar um leið og þeir gæða sér á heimalöguðum…Lesa meira

true

Gróður í uppistöðulóni orsakaði myglubragð af neysluvatni

Á vef Veitna er greint frá því að fyrirtækið hafi á síðustu dögum leitað skýringa á óvenjulegu bragði af kalda vatninu á Akranesi. Íbúar kvörtuðu í síðustu viku sáran yfir því á íbúasíðu á FB, sem þeir kölluðu ýmist myglu- eða moldarbragð af neysluvatninu. „Við höfum einangrað bragðið við lónið í Berjadalsá en vatnsveitan á…Lesa meira

true

Malbikað við Melahverfi

Í kvöld, þriðjudaginn 22. ágúst á milli kl. 19:00 og 03:00, verður unnið við malbiksviðgerðir á Vesturlandsvegi við Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Umferð verður stýrt framhjá framkvæmdasvæðinu og reikna má með smávægilegum umferðartöfum. Vegagerðin biður vegfarendur um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við…Lesa meira

true

Hnúðlaxinn er víða að veiðast

Það er fleira en þurrkar og vatnslitlar ár sem angrar laxveiðimenn þessa dagana. Hnúðlax er að veiðast og virðist vera að fjölga í ánum. „Við vorum í Búðardalsá og fengum þrjá laxa. Það var lítið vatn og fiskurinn í fossinum neðst og úti í sjó,“ sagði Jóhann Gísli Hermannsson er við spurðum um veiðitúrinn á…Lesa meira

true

Ráðuneytið kynnir skýrslu um efnahagsleg áhrif hvalveiða

Ráðgjafafyrirtækið Intellecon hefur skilað inn skýrslu til matvælaráðuneytisins um efnahagsleg áhrifa hvalveiða í Íslandi. Í tilkynningu kemur fram að ráðuneytið hafi óskað eftir skýrslunni í byrjun árs. “Þar er áhersla lögð á að greina áhrif veiðanna á íslenskt efnahagslíf auk þess sem sjónum er beint að mörkuðum fyrir hvalkjöt, hvalaafurðir og mögulegum áhrifum hvalveiða á aðra útflutningsmöguleika…Lesa meira

true

Sendiherra í heimsókn í Stykkishólmi

Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Carrin F. Bateman, heimsótti Stykkishólm síðasta föstudag. Carrin tók við embætti sendiherra 7. ágúst á síðasta ári en áður hafði hún verið stjórnarformaður almenningssamgangna í Harris-sýslu í Texas sem er sú þriðja fjölmennasta í Bandaríkjunum. Einnig var hún einn eigenda lögfræðistofunnar Bracewell LLP og starfaði þar í þrjá áratugi. Fram kemur…Lesa meira

true

Nemendum fjölgar í Menntaskóla Borgarfjarðar

Skólaárið er hafið af fullum krafti í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Nemendur við skólann í vetur verða alls 195 talsins og er það mikil fjölgun frá fyrri árum og segir Bragi Þór Svavarsson skólameistari að þetta árið sé um verulega fjölgun staðnema að ræða. Rúmlega 60 nýnemar komu til náms í skólann nú í ágúst,…Lesa meira

true

Íslandsmót golfklúbba fór fram um helgina

Það var nóg að gera hjá kylfingum á Vesturlandi um síðustu helgi sem tóku þátt í sveitakeppni í golfi víðs vegar um landið. Keppnin fór fram frá föstudegi til sunnudags og er einn af hápunktum sumarsins hjá kylfingum. Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla var haldið á Garðavelli á Akranesi og tóku alls átta klúbbar…Lesa meira

true

Ljósmyndakeppni þar sem fjölmenning er þemað

Frestur til þess að taka þátt í ljósmyndasamkeppni sem Símenntun á Vesturlandi stendur fyrir er að renna út. Keppninni, sem hófst 20. júní, lýkur 1. september næstkomandi. Viðfangsefnið er „fjölmenning“ og er öllum heimil þátttaka. „Símenntun hefur um margra ára skeið haft fjölmenningu að leiðarljósi og með þessari ljósmyndasamkeppni viljum við vekja athygli á málefninu,“…Lesa meira