
Umhyggja, félag langveikra barna og fjölskyldna þeirra, stendur fyrir Umhyggjudeginum sem haldinn er víðs vegar um land laugardaginn 26. ágúst næstkomandi. Markmið Umhyggjudagsins er að vekja athygli á félaginu og því góða starfi sem þar er unnið. Í tilefni dagsins verður meðal annars boðið frítt í sundlaugina í Stykkishólmi á milli klukkan 14 og 16.…Lesa meira








