
Synti þvert yfir Hvalfjörðinn
Á sama tíma og þúsundir Íslendinga hlupu mislanga spretti í Reykjavíkur maraþoni á laugardaginn tók Arnheiður Hjörleifsdóttir húsmóðir á Bjarteyjarsandi á Hvalfjarðarströnd sig til og synti þvert yfir Hvalfjörð. „Innblásin af öllum sem hlupu í dag og lögðu góðu málefni lið, ákvað ég að ljúka áskorun sem ég bjó til í hausnum á mér fyrr í sumar. Með Guðmund bónda mér við hlið á zodiakinum synti ég yfir Hvalfjörðinn, þriggja km leið við frábærar aðstæður,“ segir Arnheiður.