
Viðhald og endurbætur á gönguleiðinni að fossinum Glymi
Undanfarin tvö ár hefur Hvalfjarðarsveit fengið úthlutað úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, en sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum sem snúa að öryggi ferðamanna, náttúruvernd og uppbyggingu, viðhaldi og vernd mannvirkja. Í apríl síðastliðnum úthlutaði Framkvæmdasjóður 550 milljónum til 28 verkefna víðs vegar um landið. Hvalfjarðarsveit fékk þar úthlutað 5,9 milljónum króna til stígagerðar, náttúruverndar og öryggismála á gönguleiðinni að Glymi við botn Hvalfjarðar. Brýnt þykir að bæta göngleiðina þar sem fjöldi ferðamanna fer á þessar slóðir og slys hafa verið tíð undanfarin ár. Að sögn Arnheiðar Hjörleifsdóttur, umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar, hefur verið unnin öryggisáætlun fyrir svæðið og í sumar er áherslan lögð á viðhald og endurbætur á gönguleiðinni, með það að markmiði að vernda viðkvæma náttúru og auka öryggi þeirra sem á svæðið koma.